Hafnarfjörður gengur gegn ráðleggingum OECD: "Viss um að þetta sé rétta leiðin“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. september 2015 10:46 "Við erum alveg viss um að við eigum eftir að reka okkur á veggi, eigum eftir að gera mistök í þessu og eigum eftir að prufa margt, en erum alveg viss um að þetta sé rétta leiðin.“ vísir/daníel
Hafnarfjarðarbær er ósammála OECD-ríkjunum um að tölvuvæðing í kennslustofum hafi slæm áhrif á námsárangur nemenda og ætlar að fara gegn ráðleggingum þeirra. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðar, segir bæinn ætla að halda áfram að spjaldtölvuvæða skólana, en fyrstu spjaldtölvurnar verða afhentar nemendum í Áslandsskóla á morgun.Tölvurnar auðveldi nemendum námið„Við ætlum að taka þennan sjéns. Við höldum að þetta sé rétta leiðin, erum búin að marka okkur stefnu og ætlum að fara hana,“ segir Steinunn í samtali við Vísi. Spjaldtölvurnar bjóði nemendum upp á fjölbreyttara námsefni og auðveldi þeim að nálgast það. „Einnig erum við viss um að þetta auki frumkvæði og gefi nemendum frekari tækifæri til að vinna sjálfstætt og skapandi og uppgötvi námsefnið á eigin forsendum,“ segir hún.Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar.vísir/gvaOECD skiluðu af sér skýrslu í gær þar sem fram kom að tölvunotkun í kennslustofum væri ekki talin skila nemendum betri árangri, heldur þvert á móti geti haft neikvæð áhrif á námsárangur þeirra. Við gerð skýrslunnar var litið til niðurstaðna úr Pisa-könnun sem framkvæmd var í sjötíu löndum. Þar kom fram að námsárangur var hvað bestur í Austur-Asíu, þar sem tölvunotkun í kennslustofum er afar takmörkuð. Í þeim löndum sem tölvunotkun er hvað mest fór nemendum aftur í lestri.Gerir ráð fyrir að rekast á veggi„Við erum bara að taka fyrstu skrefin og gerum það á morgun í Áslansdskóla þegar við afhendum fyrstu ipad-ana til nemenda í fimmta bekk. Svo munu yfir þrjú hundruð nemendur á næstu vikum fá afhenta ipad-a, þannig að við höfum í raun ekki séð neina breytingu á námsárangri. En við erum búin að undirbúa þetta rosalega vel. Við erum bæði búin að undirbúa kennarahópinn, nemendahópinn og ekki síst foreldrana, því þetta er samstarfsverkefni,“ segir Steinunn. „Við erum alveg viss um að við eigum eftir að reka okkur á veggi, eigum eftir að gera mistök í þessu og eigum eftir að prufa margt, en erum alveg viss um að þetta sé rétta leiðin.“Guðbjörg Ragnarsdóttir.vísir/valliEftirfylgni skortirGuðbjörg Ragnarsdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara, segir vanta að fylgja eftir innleiðingu tækja og tóla með menntun þeirra sem hafa umsjón með þeim. „Ég held að það sé hluti af vandanum. Það er í raun svolítið eins og sú hugsun hefur verið hjá okkur kennurunum. Í Kópavogi er átak þar sem verið er að innleiða spjaldtölvur, en kennararnir fengu tæki og þjálfun í notkuninni áður. Svo ráða þeir ráðgjafa sem getur komið inn í skólana og aðstoðað kennara. En hverjum skóla er gert að setja sér markmið í notkuninni og það er verið að reyna að vinna á markvissari hátt með tækin,“ segir Guðbjörg. „Það er svo mikilvægt að mennta fólk í þessum efnum. En það er ekki nóg að hafa tækin, okkur vantar á Íslandi eitthvað sem er meiri íslenska, þannig að við höfum betri aðgang að efni á íslensku,“ bætir hún við.
Tengdar fréttir Tölvur í kennslustofum geti haft neikvæð áhrif Tölvunotkun í skólum er ekki talin skila nemendum betri árangri heldur þvert á móti hefur haft neikvæð áhrif á námsárangur þeirra, að því er fram kemur í nýrri skýrslu OECD ríkja. 15. september 2015 07:41 Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Fleiri fréttir Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Sjá meira
Tölvur í kennslustofum geti haft neikvæð áhrif Tölvunotkun í skólum er ekki talin skila nemendum betri árangri heldur þvert á móti hefur haft neikvæð áhrif á námsárangur þeirra, að því er fram kemur í nýrri skýrslu OECD ríkja. 15. september 2015 07:41