Kvíðanum viðhaldið með því að forðast óvissuaðstæður Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. september 2015 09:00 Sóley Dröfn Davíðsdóttir segir að til þess að fólk geti losnað við almennan kvíða þurfi það að sækja í aðstæður þar sem það hefur ekki fulla stjórn. vísir/anton
Almenn kvíðaröskun er mjög vangreindur vandi, segir Sóley Dröfn Davíðsdóttir, sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Ástæðan sé sú að kvíði einkennist af mörgum líkamlegum einkennum og fólk leiti þá ráða við þessum líkamlegu einkennum. Í sumum tilfellum leiti fólk sér hefðbundinna og óhefðbundinna ráða án þess að alltaf sé ráðist að rótum vandans. „Þannig að fólk er sjaldnast að fá fullnægjandi meðferð,“ segir Sóley Dröfn. Sóley bendir á að nýlegar rannsóknir gefi til kynna að fólk með kvíða hafi minna óvissuþol en aðrir. Þar ber hæst rannsóknir Melisu Robichaud og Michel Dugas frá Kanada, en Melisa hélt nýverið námskeið fyrir íslenska sálfræðinga um meðhöndlun vandans. Rannsóknir þeirra benda til að óhóflegar áhyggjur séu tilraun til að draga úr óvissu. Þeir sem hafa miklar áhyggjur hafi í grunninn lágt óvissuþol, það er að segja neikvæðar hugmyndir um óvissu. Þeir telji að óvissan hafi eitthvað slæmt í för með sér sem þeir muni ekki ráða við. Og þeir sem hafa minnst óvissuþol glíma við almenna kvíðaröskun. Hún einkennist af þrálátum áhyggjum og fylgja áhyggjunum iðulega spenna, þreyta, eirðarleysi, einbeitingarerfiðleikar og svefntruflanir. Áætlað er að 6 prósent fólks glími við almenna kvíðaröskun um ævina og er vandinn helmingi algengari á meðal kvenna. Nýjar meðferðir snúast því um það að fólk með almennan kvíða er látið sækja meira í óvissuna. Til dæmis að fara illa undirbúinn og keyra út í bláinn. Þannig geti fólk lært að það þurfi ekki að hræðast óvissuna. „Það sem fólk gerir venjulega, ef það hefur þá hugmynd að það höndli ekki óvissu, er að það reynir að vera með allt á hreinu til að ekkert komi á óvart,“ segir Sóley. Fólk reyni að skipuleggja allt, stjórna öllu og vera vanafast. En með því að skipuleggja aðstæðurnar sé verið að halda óvissuþolinu lágu. „Þess í stað ætti fólk að skora sjálft sig á hólm; að sækja í tvíræðar aðstæður. Til dæmis óvissuferðir og hendast af stað án þess að undirbúa sig. Bara til að sjá að það höndli aðstæður,“ segir Sóley.
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira