Hvetja fólk til að fá far hjá öðrum til að létta á umferð sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. september 2015 14:00 "Oftast nær eru menn einir í bíl sem skapar á höfuðborgarsvæðinu að minnsta kosti umferðarvandræði á morgnanna og kvöldin.“ vísir/vilhelm
Samgöngufélagið hefur tekið í notkun nýjan vef sem miðlar upplýsingum um bílfar og er ætlaður þeim sem óska eftir eða vilja bjóða far með bíl. Vefurinn er opnaður í tilefni evrópsku samgönguvikunnar, og unnið er að því að fá þennan ferðamáta viðurkenndan sem hluta almenningssamgangna. „Við vitum hvernig notkun á bílum er háttað á Íslandi. Oftast nær eru menn einir í bíl sem skapar á höfuðborgarsvæðinu að minnsta kosti umferðarvandræði á morgnanna og kvöldin. Þetta er mikil sóun á bæði vegakerfi og bílaflotanum sjálfum og bílastæðum ekki síst. Og ef menn fengjust aðeins til að nýta sér þetta þá gæti þetta létt á umferð og pyngju margra,“ segir Jónas Guðmundsson, formaður Samgöngufélagsins. Vefurinn var opnaður síðastliðinn miðvikudag. Um getur verið að ræða hvort heldur sem ósk eða boð um stakar ferðir, til dæmis milli landshluta, eða reglulegar ferðir, til dæmis til eða frá vinnu. Hægt er að nálgast vefinn í gegnum Bílfar.is með því að skrá sig í gegnum Facebook. Jónas segir að vel sé hægt að treysta vefnum, en ef fólk sé í einhverjum vafa eigi það að sleppa því að þiggja far.Oftast nær einn í hverjum bíl „Ég tel að það eigi að vera hægt að treysta þessu, þó maður viti auðvitað aldrei. Menn verða að fara varlega og ef þeir eru í minnsta vafa þá ráðlegg ég þeim að láta ógert að þiggja eða bjóða far,“ segir hann. Hann vill að ferðamáti sem þessi verði viðurkenndur sem hluti almenningssamgangna. „Ég vil meina að þetta eigi að vera það. Að sveitarfélög eða aðrir geti stutt við þetta og vísað á þetta og óskað eftir því að fólk notist við þetta.“Síðuna má finna hér.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira