Semja við Grænland um skiptingu á gullkarfa Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2015 17:45 Karfi. Vísir/Stefán
Búið er að undirrita tvíhliða samning milli Íslands og Grænlands um skiptingu gullkarfa. Samningurinn er til þriggja ára og felur í sér skiptinguna 90 prósent fyrir Ísland og 10 prósent fyrir Grænland. Auk þess er gert ráð fyrir 350 tonna afla annarra þjóða á hverju ári samningsins.Í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti kemur fram að í samningnum sé ákveðin nýtingaráætlun sem feli í sér aflareglu, sem sé sú hin sama og íslensk stjórnvöld samþykktu á síðasta ári eftir að Alþjóðahafrannsóknaráðið yfirfór hana með tilliti til hámarks langtíma afraksturs og alþjóðlegra varúðarsjónarmiða. „Jafnframt var gerður samningur um landanir grænlenskra skipa í íslenskum höfnum fyrir árið 2015. Geta grænlensk skip á þessu ári landað allt að 50 þúsund tonnum af makríl og 15 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld. Góð samskipti Íslands og Grænlands á sjávarútvegssviði eru afar þýðingarmikil báðum þjóðum. Þessi samningur mun styrkja enn frekar samstarf þessara þjóða og tryggja ábyrgar veiðar úr þessum sameiginlega stofni þjóðanna. Formaður samninganefndar Grænlands var Emanuel Rosing skrifstofustjóri í grænlenska sjávarútvegsráðuneytinu og formaður þeirrar íslensku var Jóhann Guðmundsson skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira