Gluggagægir í Hafnarfirði Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 19. september 2015 09:52 Nokkuð var um pústra milli manna í miðborg Reykjavíkur í nótt en flest málin voru yfirstaðin þegar lögreglu bar að. Vísir/Anton
Nóttin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Laust fyrir miðnætti var tilkynnt um karlmann sem var að gægjast inn um glugga í íbúðarblokk í Hafnarfirði. Íbúi í blokkinni reyndi að halda manninum þangað til að lögreglan kæmi á vettvang. Til átaka kom á milli mannanna og flúði maðurinn af vettvangi. Lögregla hafði upp á honum skömmu síðar. Var hann afar ölvaður og gat ekki gert grein fyrir sér eða háttalagi sínu. Var hann vistaður í fangaklefa þangað til að áfengisvíman rennur af honum. Annars var nokkuð um ölvun og óspektir í miðborg Reykjavíkur í nótt og gistu nokkrir fangageymslu sökum ölvunar.Fyrr um kvöldið var tilkynnt um ölvun og óspektir í miðborg Reykjavíkur milli nokkurra einstaklinga. Kona á fimmtudagsaldri var handtekin. Hún var talsvert ölvuð að sögn lögreglu og fór ekki að fyrirmælum. Auk hennar var karlmaður á sextugsaldri handtekinn en hann reyndi að hindra störf lögreglu. Á tíunda tímanum kom eldur upp í veitingahúsi í miðbænum. Var bæði lögregla og slökkvilið sent á vettvang. Þegar þangað var komið voru starfsmenn staðarins búnir að slökkva eldinn en hann hafði komið upp í grilli eldhússins. Á fimmta tímanum í nótt var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn eftir að tilkynnt hafði verið um ferðir hans í bílskúr í Þingholtunum. Karlmaðurinn viðurkenndi að hafa ætlað að stela verkfærum úr skúrnum. Karlmaðurinn var talsvert annarlegu ástandi sökum fíkniefnaneyslu og var hann því vistaður í fangaklefa vegna málsins. Að sögn lögreglu var nokkuð um pústra milli manna í miðborg Reykjavíkur í nótt en flest málin voru yfirstaðin þegar lögreglu bar að.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira