Lögreglan á Íslandi hjálpaði til við að rekja fjármagnsflæði til Kína í alþjóðlegri aðgerð Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2015 13:16 Hluti þeirra efna sem bandaríska lyfjaeftirlitið hefur lagt hald á í aðgerðum sínum. Vísir/EPA
Samstarf Evrópulögreglunnar og bandarísku fíkniefnalögreglunnar um að koma böndum á ólöglegan steraiðnað hefur náð hámarki að því er fram kemur í tilkynningu frá Europol. Rannsóknin beindist gegn framleiðendum í Kína og þeim sem sjá um að selja þessa ólöglegu stera í Evrópu. Aðgerðin fékk heitið Operation Underground, eða Neðanjarðaraðgerðin, og komu yfirvöld 15 landa innan Evrópusambandsins að henni ásamt yfirvöldum í Ástralíu, Íslandi og Sviss. Alþjóðalögreglan Interpol var einnig viðloðin hana ásamt alþjóðalyfjaeftirlitinu. Operation Underground átti sér stað samhliða rannsóknum á 36 málum í 20 ríkjum Bandaríkjanna en sú aðgerð nefndist Operation Cyber Juice. Vísir sagði frá því fyrr í morgun að lögreglan hefði framkvæmt húsleit á nokkrum stöðum hér á landi í gær í tengslum við þessa aðgerð og voru efni gerð upptæk. Jafnframt voru nokkrir handteknir og þeir færðir til skýrslutöku en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir einhverjum þeirra.Sjá einnig: Húsleitir og handtökur hér á landi vegna steraframleiðslu Europol segist hafa átt í nánu samstarfi við lögregluyfirvöld í Kýpur, Ítalíu, Belgíu og á Íslandi og segist þannig hafa fengið saknæmar upplýsingar um þennan iðnað. Í tilkynningunni kemur til að mynda fram að náið samstarf við lögregluyfirvöld á Íslandi hefði sérstaklega leitt til þess að upplýsingar fengust um flæði fjármagns í Kína. Lagt var hald á 135 þúsund steraskammt ásamt 636 kílóum af hráu efni til steragerðar með kínverskan uppruna. Einnig var lagt hald á tvær milljónir bandarískra dollara í þessari aðgerð, um 256 milljónir íslenskra króna miðað við gengi dagsins. Lögreglan framkvæmdi fjölda húsleita sem leiddu til handtaka á 92 einstaklingum og stöðvaði lögreglan steraframleiðslu á 16 stöðum. Á þessum stöðum fannst mikið magn efna ásamt búnaði og leiðbeiningum til að framleiða flókin, ólögleg og mögulega lífshættuleg efni.Vara við hættunum af ólöglegum sterum Rob Wainwright, stjórnandi Europol, þakkar árangurinn sem náðist í þessari aðgerð samstarfi þeirra sem höfðu það að markmiði að uppræta glæpastarfsemi. „Europol mun halda áfram árangursríku samstarfi sínu við lögregluyfirvöld um allan heim til að uppræta glæpi um heiminn og á netinu.“ Chuck Rosenberg, stjórnandi bandarísku fíkniefnalögreglunnar, segir of marga Bandaríkjamenn, þar á meðal ungt fólk sem er enn að taka út líkamlegan þroska, eyðileggja líf sitt með steramisnotkun. „Glæpamenn eru að nýta sér internetið ekki einungis til að koma eiturlyfjum í umferð, heldur einnig til að gefa rangar upplýsingar um kosti steranotkunar og annarra lyfja sem veita eru sögð veita forskot.“ Í tilkynningunni frá Europol kemur fram að mikil hætta sé fólgin í því að kaupa stera, efni og aðrar ólöglegar vörur á netinu. Eru mörg fyrirtæki sem starfa án leyfis sögð hafa engar áhyggjur af öryggisstöðlum og gefi rangar upplýsingar um sínar vöru, viljandi og óviljandi. Tekið er fram að ekki hafi verið gætt hreinlætis á þeim tilraunastofum sem lögreglan innsiglaði, sem sýni enn fremur hætturnar sem fylgja því að kaupa efnið sem frá þeim er komið.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira