Þorgerður ráðin Útvarpsleikhússtjóri Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2015 17:16 Þorgerður E. Sigurðardóttir. Mynd/RÚV
Þorgerður E. Sigurðardóttir hefur verið ráðin nýr Útvarpsleikhússtjóri og tekur hún við starfinu af Viðari Eggertssyni þann 1. desember. Í tilkynningu frá RÚV segir að Þorgerður hafi víðtæka reynslu á sviði útvarpsmennsku, bókmennta og leiklistar. „Hún er hlustendum Rásar 1 vel kunnug þar sem hún hefur verið í framvarðasveit dagskrárgerðamanna Rásar 1 síðustu ár og haft umsjón með Víðsjá og Bók vikunnar. Þorgerður er með BA-gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og BA-gráðu í leikmynda-og búningahönnun frá Nottingham Trent University auk þess sem hún hefur lagt stund á nám í heimilda- og fléttuþáttagerð fyrir útvarp. Nýr Útvarpsleikhússtjóri hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands í almennri bókmenntafræði og við Listaháskóla Íslands í sviðslistadeild og listkennsludeild. Hún hefur setið í dómnefnd fyrir Íslensku bókmenntaverðlaunin, verið fulltrúi Sviðslistasambands Íslands í úthlutunarnefnd vegna starfslauna listamanna, gegnt dómnefndarstörfum við val á framlagi Íslands til norrænu leikritaverðlaunanna og starfað sem leiklistar- og bókmenntagagnrýnandi. Þorgerður hefur verið virk í menningarlífi hér heima og hróður hennar hefur borist út fyrir landsteinana. Hún hefur m.a. tekið þátt í að skapa hljóðverk fyrir Listahátíð með hljóðgönguhópnum Innra eyranu sem tekur nú þátt í Evrópuverkefninu Urban Heat. Í starfi Útvarpsleikhússtjóra mun Þorgerður, ásamt dagskrárstjóra Rásar 1, marka Útvarpsleikhúsinu stefnu til náinnar framtíðar, huga að sóknarfærum til að efla listgreinina sjálfa og nýta þau tækifæri sem eru í sjónmáli til að vinna henni veg og ekki síst koma auga á ný,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira