Með fölsuð vegabréf í leit að öryggi ingvar haraldsson skrifar 7. september 2015 07:00 koma til landsins Flestir þeirra sem hafa verið með fölsuð skilríki á Keflavíkurflugvelli hafa verið að koma frá Svíþjóð. fréttablaðið/andri marínó „
Það er aldrei neitt annað en örvæntingin sem stýrir för og þráin eftir öryggi og skjóli,“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, um þá hælisleitendur sem stöðvaðir eru á leiðinni hingað til lands með fölsuð skilríki. Það sem af er þessu ári hefur lögreglan í Leifsstöð stöðvað 29 manns ýmist með fölsuð vegabréf eða vegabréf annarra. Af þessum 29 ætluðu 22 áfram til annarra landa. Þar af hafa 17 sótt um hæli hér á landi en 16 verið ákærðir og hlotið fangelsisdóm fyrir. Rauði krossinn hefur bent á að fangelsun hælisleitenda vegna skjalafals megi túlka sem brot á flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins„Eðli orðsins flóttamaður er einhver sem er á flótta af því hann upplifir sjálfan sig eða fjölskyldu sína í lífshættu. Ef þú þarft að leita allra leiða til að komast úr brennandi húsi t.d., þá ertu ekki að setja spurningarmerki við það þótt þú farir út um stiga sem á venjulega ekki að nota. Það er kannski það sama ef þú ert á flótta, þá leitar þú væntanlega allra leiða til að komast burt og myndir þá jafnvel ekki setja fyrir þig að komast yfir skilríki sem þú veist ekki hvort eru lögleg eða ekki,“ segir Björn. Hann bendir þó á að samkvæmt drögum að lagafrumvarpi um útlendinga sé gert ráð fyrir að hætt verði að refsa hælisleitendum fyrir skjalafals og því fagni Rauði krossinn. Eiríkur H. Sigurjónsson, rannsóknarlögreglumaður hjá Flugstöðvardeild Lögreglustjórans á Suðurnesjum, bendir á að ellefu af þeim sautján sem sótt hafa um hæli hafi sótt um hæli áður á Schengen-svæðinu. „Þá veltir maður fyrir sér tilgangi Dyflinnarsamstarfsins. Þetta er svolítið íþyngjandi fyrir Evrópu í heild sinni að fólk geti farið á milli landa og sótt um hæli á nýjum og nýjum stað þótt vissulega þurfi maður að hafa í huga réttindi þessa fólks og aðstæður,“ segir hann. „Það kannski skýrir að einhverju leyti af hverju við erum með tiltölulega fáa sem fá stöðu flóttamanns,“ segir Eiríkur.
Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Erlent Fleiri fréttir Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Sjá meira