„Drengurinn minn er ekki rasisti“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. ágúst 2015 13:21 Atvikið átti sér stað í Breiðholtinu í gær. vísir/gva
Móðir drengsins sem lenti í áflogum við jafnaldra sinn í Breiðholtinu í gær segir að sonur sinn hafi ráðist á hinn 12 ára gamla Davíð Sebastian Ert í sjálfsvörn. Hann hafi verið króaður af af hópi jafnaldra sinna sem hafi krafist þess að drengurinn myndi fljúgast á við þau. Drengurinn er með taugaþroskunarröskun og hafi orðið hræddur. Vísar hún því á bug að sonur hennar sé haldin einhverskonar kynþáttafordómum. Stefanía Rut Kondrup er móðir drengsins og lýsir hún atvikinu sem átti sér stað í gær á þennan hátt: „Þau eru mörg í hóp, kannski 12-13 og gera aðsúg að honum. Hann er einn á móti þeim öllum og þau ætluðu ekki að hleypa honum í burtu nema hann myndi slást við þau. Strákurinn minn er með taugaþroskunarröskun og liggur kannski vel við höggi, félagslegar gáfur hans eru kannski ekki upp á marga fiska. Hann verður hræddur og bregst við. Hann hleypur svo heim til okkar og hópurinn kemur í humátt á eftir honum.“Komust inn á stigaganginn Stefanía Rut segir að hópurinn hafi brotið rúðu á stigaganginum heima hjá þeim og neitað að yfirgefa svæðið fyrr en barnsfaðir Stefaníu hótaði að hringja á lögregluna. „Þau komast inn á stigaganginn hjá okkur og byrja að öskra á mig, gefa mér puttann og eru með ógnandi tilburði. Þau brjóta rúðu þarna og fara ekki fet fyrr en barnsfaðir minn hótar að hringja á lögregluna.“ Stefanía Rut vísar því á bug að sonur hennar hafi verið með fordóma gagnvart útlendingum líkt og Sylwia Bjarnadóttir, móðir Davíðs Sebastians, lýsir í frásögn sinni af atvikum málsins. „Strákurinn minn gengur í skóla sem börn af margskonar uppruna ganga í, margir af bestu vinum hans eru t.d. frá Póllandi. Mér þykir það mjög skrýtið hafi hann allt í einu sýnt af sér einhverja kynþáttafordóma og nota einhver orð sem ég hef aldrei heyrt hann nota. Drengurinn minn er ekki rasisti.“
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira