Telja ekki tímabært að lýsa yfir neyðarástandi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. ágúst 2015 08:00 Hluti háskólanema sækir námsefni sitt á netið líkt og þessi gæti verið að gera. vísir/ernir
Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs „Það er svo erfitt að byggja upplýsta umræðu á sölutölum á nýjum bókum þar sem skiptibókamarkaðir fara fram mikið innan nemendafélaganna. Auk þess eru Facebook-grúppur þar sem bækur ganga kaupum og sölum,“ segir Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Fréttablaðið fjallaði í vikunni um áhyggjur kennara við skólann af því að einungis 40% nemenda við skólann keyptu skyldulesefni sitt nýtt frá Bóksölu stúdenta. „Ég tel að áður en við förum að bregðast við eða kalla þetta yfirborðsnám eða hvað sem við viljum segja eigum við að spyrja nemendur hvort þeir útvegi sér námsefnið,“ segir Aron. „Mér finnst að við verðum að afla fleiri gagna til að geta lýst yfir neyðarástandi vegna þessa. Það eru léleg akademísk vinnubrögð að fókusera bara á þennan hluta,“ bætir hann við og segir að til þess að tryggja að nemendur séu með skyldulesefni gæti verið snjallt að auka símat og vinna fleiri verkefni upp úr námsefninu.Nanna Elísa Jakobsdóttir, formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta„Í fyrsta lagi er kannski rétt að taka fram að sölutölur Bóksölunnar eru ekki nægur grunnur til að álykta um hverjir kaupa hvaða bækur og hvort þeir lesi þær,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS). „Hins vegar er staðreyndin sú að þegar kemur að sumum fögum er bókakostnaður svimandi hár, hann hleypur oft á tugum þúsunda,“ bætir hún við. „Það veldur oft kvíða á haustin og eftir jól því bókalánið hjá LÍN er einfaldlega ekki í samræmi við raunkostnað,“ segir Nanna. Hún segir nemendur þá leita ódýrari leiða til að koma höndum yfir námsefnið. Meðal annars með því að kaupa notaðar, eldri bækur, sem hún segir oft nánast alveg eins og fyrri útgáfur. „Það sýnir ekki slæmar námsvenjur eða yfirborðslærdóm að bjarga sér með öðrum leiðum,“ segir Nanna og skorar LÍS á skólayfirvöld og kennara að íhuga stöðu nemenda þegar námskeið eru undirbúin. María Dóra Björnsdóttir, deildarstjóri náms- og starfsráðgjafar hjá skólanum, segir allar líkur á að nemendur kaupi eða fái lánaðar námsbækur frá öðrum nemendum. „Síðan heyrir maður af og til að þau séu dugleg að hala niður bókum. Að verða sér úti um þær á einn eða annan hátt á netinu,“ segir María. Hún segir að Bóksala stúdenta muni halda úti skiptibókamarkaði á næstunni í fyrsta skipti í fimmtán ár og geti nemendur þá nálgast ódýrari bækur þar. „Ég er ekki viss um að tölurnar um sölu á nýjum bókum segi alla söguna. En auðvitað gefa þær ákveðna mynd og maður á að velta því fyrir sér hvað þetta þýðir.“
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira