Bursta tennur barna í leikskólanum Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 28. ágúst 2015 19:00
Tannhirðu hjá fjölda leikskólabarna er ábótavant. Á leikskólanum Ösp eru tennur leikskólabarna burstaðar eftir hádegismatinn. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var litið við í leikskólanum þegar tennur barnanna voru burstaðar í dag.Í umfjöllunum Stöðvar tvö í vikunni hefur verið fjallað um slæma tannheilsu íslenskra barna en miklu meira er um tannskemmdir í þeirra hópi en sambærilegum hópum í nágrannalöndum. Að minnsta kosti þrjúhundruð íslensk börn eru svæfð á hverju ári vegna alvarlegra tannskemmda. Á leikskólanum Ösp er reynt að koma í veg fyrir þetta. Verkefnið kallast betri tannheilsa barna og er unnið í samstarfi heilsugæslunnar og Þjónustumiðstöð Breiðholts. Átakið nær til sjöhundruð barna í dag en í átta leikskólum í Breiðholti, Garðabæ og Kópavogi er það hluti af daglegri rútínu að bursta tennur barna eftir hádegismatinn.Tannlæknir starfar með leikskólunum, metur tannheilsu barnanna og veitir aðstoð við að skráningu barna hjá heimilistannlækni. Foreldrar vanda sig við tannhirðu barnanna heima – á morgnana og á kvöldin – en eftir hádegismatinn eru tennurnar burstaðar í leikskólanum. Hólmfríður Guðmundsdóttir er sérfræðingur í tannheilsu Íslendinga hjá Embætti landlæknis og segir átakið gefa góðan árangur. „Hér er verið að vinna mjög gott starf með unga fólkið okkar og litlu börnin. VIð erum að hugsa um að bursta tennurnar í leikskólanum. Starfsfólk og foreldrar eru mjög kátir og ánægðir með þetta framtak. Við viljum fækka tannskemmdum hjá þessum litlu börnum. Ekki viljum við hafa þau með tannskemmdir í leikskólanum. Síðan erum við líka að vinna í því að þegar þau mæta í fyrsta skipti til tannlæknis að þá sé það ánægjuleg upplifun en ekki svona erfiðleikar eins og við sáum nýlega í þessum mögnuðu þáttum sem voru sýndir á Stöð 2.“ [Innskot blm:Junk Food Kids]. Hólmfríður segist vona að í framtíðinni verði öll leikskólabörn á landinu burstuð eftir hádegismatinn. Á leikskólaaldri eykst tannheilsuvandi jafnt og þétt. Á skýringarmynd hér til hliðar sést hlutfall barna sem hafa verið skráð hjá heimilistannlækni í þeim árgöngum sem komnir eru inn í gjaldfrjálsa kerfið. Eins og sjá má þá lækkar hlutfallið með aldri barnanna. „Við erum búin að sjá heilmikinn árangur. Bæði sjáum við það að börnin eru betur burstuð, það er það sem við viljum vinna í. Svo eru þau öll svo ánægð með þetta börnin. Þau vilja hafa hreinar og heilar tennur hér á Öspinni.“
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira