Þriðjungur þeirra sem þurfa stuðningsþjónustu í Reykjavík á biðlista Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 29. ágúst 2015 09:00 slaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í velferðarráði, segir biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu óásættanlega langan.
Alls eru 498 á biðlista eftir stuðningsþjónustu í Reykjavík eða 37 fleiri en á síðasta ári. Þá voru ríflega 1.100 sem fengu þjónustuna og því stórt hlutfall þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda á biðlista. Að sögn ráðgjafa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar er stærstur hluti biðlista til kominn vegna skorts á fjármagni, en það kostar um það bil 280 milljónir króna að koma til móts við þjónustuþarfir þeirra sem á listanum eru. Einnig segja ráðgjafar erfitt að ráða starfsmenn til að sinna þjónustunni, sérstaklega sérhæft starfsfólk þar sem launin eru ekki samkeppnishæf hjá borginni. Þetta kemur fram á minnisblaði frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar sem kynnt var á fundi velferðarráðs í vikunni. Stuðningsþjónustan hefur meðal annars það markmið að koma í veg fyrir félagslega einangrun og bæta samskiptahæfni. Þannig hefur þjónustan forvarnargildi. „Það er samdóma álit þeirra sem starfa við stuðningsþjónustu að þeir sem ekki fá þjónustu í samræmi við þarfir geti frekar þróað með sér auknar þjónustuþarfir eða vandamál síðar,“ segir í minnisblaði velferðarsviðs.Ilmur Kristjánsdóttir, varaborgarfulltrúi Bjartrar framtíðar, er formaður velferðarráðs.Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í velferðarráði, segir biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu óásættanlega langan. Hún lagði til á fundi velferðarráðs að stuðningsþjónustan yrði meðhöndluð eins og önnur lögbundin þjónusta, til dæmis fjárhagsaðstoð og húsaleigubætur, þar sem ekki er leyfilegt að setja fólk á biðlista. Tillagan var felld af meirihlutanum en hann samþykkti að vísa hugmyndinni inn í vinnu vegna fjárhagsáætlunargerðar. Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs, segir meirihlutann meðvitaðan um vandann en að það þurfi að eiga við hann í skrefum. „Við vitum að það er mikil þörf í málaflokknum en þjónustan er flókin og margvísleg. Þannig að kerfið þarf að vera sveigjanlegt og því finnst okkur þjónustan ekki henta sem bundinn liður, enn sem komið er að minnsta kosti. Það þarf að kortleggja þörfina betur. En það þarf að tryggja þessa þjónustu. Það er ljóst,“ segir Ilmur. Á fundi velferðarráðs lagði Sjálfstæðisflokkurinn einnig til að stuðningsþjónusta yrði boðin út. „Ef borgin getur ekki staðið undir þessum þörfum verðum við að fá einkaaðila í lið með okkur,“ segir Áslaug. „Að sjálfsögðu þurfa slíkir aðilar að uppfylla sömu gæða- og hæfniskröfur og gerðar eru til þjónustunnar hjá Reykjavíkurborg. En getuleysi borgarinnar á ekki að bitna á notendunum.“
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira