Lífið

Vörubílsstjóri á sjötugsaldri valinn glæsilegasti öldungurinn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það fór ekkert á milli mála hver átti sviðið er Nascimento gekk inn á það.
Það fór ekkert á milli mála hver átti sviðið er Nascimento gekk inn á það. vísir/ap
Aureo do Nascimento, 63 ára gamall brasilískur vörubílsstjóri, er fallegasti öldungur Sao Paulo borgar. Hann varð hlutskarpastur í fegurðarsamkeppni eldri karla þar í borg en keppnin fór fram í gær.

„Keppnin er frábær og gerir mikið fyrir karla sem taka þátt í henni. Hún hjálpar við að minnka fordóma í garð miðaldra manna,“ segir Nascimento. Hann varð hlutskarpastur 22 keppenda. Sá yngsti var 62 ára en öldungur hópsins hafði séð rúmlega 94 ár.

Að auki voru veitt verðlaun fyrir fágaðasta keppandann, þann feimnasta og þann brosmildasta. Dómnefndin var að sjálfsögðu skipuð fimm konum á svipuðu aldursbili og keppendurnir sjálfir eru á.

vísir/ap
Keppendur og áhorfendur skemmtu sér konunglega.vísir/ap
Þessi glæsilega kona var mætt til að styðja sinn mann.vísir/ap
Kapparnir voru hver öðrum glæsilegri.vísir/ap

Tengdar fréttir

Ungfrú Ísland: Stúlkurnar eru spenntar að taka þátt

Ungfrú Ísland verður haldin í hörpu 5. september. Undirbúningi hefur verið breytt til að búa stúlkurnar betur undir stærri keppnir erlendis. Meðal áhersluatriða í undirbúningi eru efling sjálfsmyndar og kennsla í framkomi í fjölmiðluum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.