Lífið

Ungfrú Ísland: Stúlkurnar eru spenntar að taka þátt

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má hópinn sem tekur þátt í Ungfrú Íslandi í ár. María Björk Einarsdóttir og Sandra Ýr Gunnlaugsdóttir eru þó fjarverandi, en þær eru staddar erlendis.
Hér má hópinn sem tekur þátt í Ungfrú Íslandi í ár. María Björk Einarsdóttir og Sandra Ýr Gunnlaugsdóttir eru þó fjarverandi, en þær eru staddar erlendis. Vísir/Andri Marinó
„Stúlkurnar eru 24 talsins sem keppa um titilinn og eru allar stórglæsilegar jafnt innan sem utan,“ segir Fanney Ingvarsdóttir, sem hefur yfirumsjón með keppninni Ungfrú Ísland sem hefur verið endurvakin eftir tveggja ára hlé. Keppnin fer fram í Hörpu 5. september.

„Við erum ótrúlega spennt yfir nýju staðsetningunni og fannst okkur tilvalið að nýta tækifærið og breyta aðeins hvernig undirbúningi yrði háttað,“ útskýrir Fanney enn frekar.

Eins og áður hefur komið fram í Fréttablaðinu keyptu hjónin Hafdís Jónsdóttir og Björn Leifsson, kennd við World Class, keppnina í fyrra.

Fanney Ingvarsdóttir er framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland 2015.
Breytt snið

Keppnin og undirbúningur keppenda verður með breyttu sniði, en skipuleggjendur segja að aukin áhersla verði lögð á þætti á borð við eflingu sjálfsmyndar og framkomu í fjölmiðlum. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á sjálfri keppninni, sem verða kynntar þegar nær dregur. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2.

Stærsti titillinn sem keppt er um er sem fyrr Ungfrú Ísland, eða Miss World Iceland. Sú sem hlýtur þá nafnbót verður fulltrúi Íslands í Miss World í Kína í desember.

„Við munum einnig hafa undirtitla eins og er í keppninni Ungfrú Heimur en þar ber helst að nefna, Miss Top Model Ísland, Miss Sport Ísland, Miss People's Choice Ísland, Miss Talent Ísland og Miss Multi Media Ísland,“ bætir Fanney við.

Mikill undirbúningur

Stúlkurnar sem taka þátt í keppninni fá mikla þjálfun í ýmsum þáttum. „Við fáum við til okkar góða gesti í sumar sem aðstoða við undirbúninginn. Þar ber helst að nefna þjálfara frá Dale Carnagie sem mun halda fyrirlestur varðandi sjálfsmyndina sem ég tel mikilvægan lið í ferlinu. Einnig fáum við fjölmiðlafræðing til okkar sem mun ráðleggja stúlkunum hvernig best er að koma fram í viðtölum,“ segir Fanney og heldur áfram:

„Heiðar Jónsson kemur og deilir þekkingu sinni og reynslu til stúlknanna og fullt af fleira flottu fólki. Auðvitað verður nóg af mórölskum hittingum en stúlkurnar hafa strax frá fyrsta degi náð virkilega vel saman sem gerir ferlið enn skemmtilegra.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×