Umræðan: Píratar á góðri siglingu Heiða Kristín Helgadóttir skrifar 23. júní 2015 18:10 Mikið fylgi Pírata var meðal annars til umræðu í þættinum í gær. Vísir
Baldur Héðinsson stærðfræðingur segir fylgi Pírata vera orðið nokkuð fast um og yfir þrjátíu prósent, enda hafi flokkurinn verið að mælast svona hjá öllum könnunaraðilum síðustu mánuði. „Þetta er bara þeirra fylgi í dag, sem er stórmerkilegt,“ segir Baldur. Baldur var gestur Heiðu Kristínar í Umræðunni ásamt þeim Huldu Þórisdóttur, doktor í stjórnmálasálfræði, og Kolbeini Óttarrssyni Proppé, blaðamanni á Fréttablaðinu, í gærkvöldi. Þau gerðu upp þingveturinn og rýndu í tölur og stöðuna í stjórnmálunum. Heiða Kristín ræddi líka við fulltrúa allra flokka á þingi og bað þá að lýsa stöðunni eins og hún horfir við þeim, eins tók hún stöðuna á almenningi og spurði hvernig fyrirmyndar stjórnmálaflokkur væri saman settur. Hulda telur að fylgi Pírata megi skýra með tilliti til skorts á trausti, sem Alþingi hafi alfarið mistekist að byggja upp í kjölfar hrunsins. „Ég held að fólk treysti ekki hinum flokkunum og Píratar hafi ekki verið staðnir að óheilindum,“ segir Hulda. „Þeir hafa ekki valdið neinum vonbrigðum ennþá.“Hulda segir kjósendur Pírata ekki falla inn í hefðbundna hópa kjósenda.Vísir/VilhelmBjört framtíð mældist með 3,3 prósenta fylgi í síðustu könnun Fréttablaðsins en flokkurinn er nýr á þingi eins og flokkur Pírata. Hann virðist þó samkvæmt þessu ekki kalla fram sömu hughrif og Píratar, þó flokkurinn hafi um tíma mælst næst stærsti flokkur landsins. Hulda segir muninn milli þessara flokka vera mjög greinilegan pólitískt. „Píratar eru eitthvað allt annað, á meðan Björt framtíð hefur frekar fallið inn í landslagið sem er. Miðað við kjósendur annarra flokka, falla kjósendur Pírata ekki inní þann hóp svo glatt. Þeir eru meira út um allt og falla ekki að þessum hefðbundnu skilgreiningum.“ Baldur benti þó á að Björt framtíð hefði verið að mælast hærri í öðrum könnunum og að þessi mæling væri nær því að mæla ákveðna stöðu þessa stundina. Hann segist telja að flokkurinn sé ennþá „inni á þingi.“ Kolbeini fannst svör Ragnheiðar Ríkharðsdóttur skera sig helst til úr, þegar fulltrúar flokkanna voru beðnir um að meta stöðu síns flokks. „Ætli hún sé ekki að undirbúa eitthvað embætti í flokknum,“ segir Kolbeinn og bætir við að Ragnheiður tæki fulla ábyrgð á þeim átakastjórnmálum sem iðkuð eru á þingi. Því var einnig velt upp við borðið hvort Ragnheiður væri að undirbúa forsetaframboð. Kolbeinn benti einnig á að Vinstri grænir uppskeri ekki meira fylgi, jafnvel þó náttúruverndarmál hafi komist á dagskrá með rammaáætlun og formaður flokksins njóti mjög mikils trausts. Hann sagði flokkinn þó þola nokkuð vel að vera lítill flokkur. Öðru máli gegndi með Samfylkinguna, sem hefði verið stofnuð til að vera höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins og sameina vinstrimenn. Það væri ekki að takast. Hulda sagði verkefni stjórnmálaflokka við að byggja upp traust vera líkt því og þegar maki heldur framhjá. „Þú mátt ekki einu sinni sjá SMS sem er vafasamt hjá makanum, þá er allt farið til fjandans.”
Tengdar fréttir Segir Framsókn hafa staðið við stóru kosningarloforðin Piratar þurfa tímarúm til að meta stöðuna. 23. júní 2015 16:15 Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Fleiri fréttir Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Sjá meira
Segir Framsókn hafa staðið við stóru kosningarloforðin Piratar þurfa tímarúm til að meta stöðuna. 23. júní 2015 16:15