Innlent

Forseti bæjarstjórnar segir skiptar skoðanir á mögulegum flugvelli í Hafnarfirði

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Guðlaug Kristjánsdóttir segir að ekki eigi að útiloka neina möguleika og segir Hvassahraun verða skoðað nánar sem mögulegt flugvallarstæði.
Guðlaug Kristjánsdóttir segir að ekki eigi að útiloka neina möguleika og segir Hvassahraun verða skoðað nánar sem mögulegt flugvallarstæði. Vísir/Pjetur
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ætla að skoða nánar möguleikann á flugvelli í Hvassahrauni. Forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði segir að málið hafi ekki verið rætt en nú verði kallað eftir frekari upplýsingum.



Niðurstaða Rögnu-nefndarinnar sem kannaði möguleg flugvallarstæði við höfuðborgina telur Hvassahraun í Hafnarfirði vera besta kostinn. Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, segir hugmyndina áhugaverð.



„Þetta leggst nú bara í mig sem áhugaverð hugmynd sem við verðum að skoða í grunninn. Ég svo svona og heyri í kringum mig að það eru svona aðeins blendnar tilfinningar. Fólk sem býr þarna nálægt er kannski meira efins en aðrir en þetta er bara án efa eitthvað sem við þurfum að skoða vel,“ segir hún.



Hver eru næstu skref hjá bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði? Verða fulltrúar Rögnunefndarinnar kallaðir á fund bæjarins? „Næstu skref eru einmitt að fá greinargóðar og skýrar upplýsingar og það er náttúrulega best að fá þær frá fyrstu hendi,“ segir Guðlaug.



Áður en að skýrslan var birt var búið að ræða þennan möguleika. Guðlaug segir bæinn hafa verið meðvitaðan um það án þess að málið hafi verið skoðað sérstaklega.

„Við vorum búin að heyra eins og aðrir að þetta væri einn af þeim stöðum sem væru í umræðunni en á meðan margir kostir voru í skoðun, þetta er náttúrulega önnur staða í dag, þegar þetta er tilgreint sem helsti valkosturinn, þá ýtir það við því að við verðum að taka þetta til skoðunar,“ segir hún.



Sjálf segist Guðlaug ekki treysta sér til að leggja persónulegt mat á kostinn, skoða verði málið út frá kostum og göllum. Hún segist þó telja að ekki eigi að útiloka neitt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×