Frambjóðandi UKIP hótaði að skjóta andstæðing Atli Ísleifsson skrifar 5. maí 2015 21:35 Robert Blay lét orðin falla í samtali við blaðamann Daily Mirror.
Breski sjálfstæðisflokkurinn (UKIP) hefur vísað einum frambjóðenda sinna úr flokknum tveimur dögum fyrir þingkosningarnar. Ástæðan er sú að hann hótaði að skjóta pólitískan andstæðing sinn. Robert Blay, frambjóðandi UKIP í Hampshire, suður af London, lét orðin falla í samtali við blaðamann Daily Mirror. Voru þeir Blay að ræða horfur á því að Ranil Jayawardena, frambjóðandi Íhaldsmanna, kynni einn daginn að verða fyrsti forsætisráðherra Bretlands af asískum uppruna. „Ef hann verður það, þá mun ég koma byssukúlu fyrir á milli augna hans. Ef þessi maður verður forsætisráðherra okkar mun ég persónulega skjóta hann. Þetta skiptir mig þetta miklu máli,“ sagði Blay. Aðspurður um uppruna Jayawardena sagði Blay: „Fjölskylda hans hefur einungis verið hérna síðan á áttunda áratugnum. Þá er maður ekki nægilega breskur til að vera á þinginu. Ég get rakið ættir mínar hér fjögur hundruð ár aftur. Hann getur það ekki.“ Jayawardena segist sjálfur gáttaður á því að maður með slíkar skoðanir geti verið valinn til að vera frambjóðandi UKIP.Sjá má myndband af samtali blaðamannsins og Blay í frétt Daily Mirror.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Fleiri fréttir „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Sjá meira