Drottningin veitir Cameron stjórnarumboð Heimir Már Pétursson skrifar 8. maí 2015 19:13
David Cameron leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi gekk á fund Elísabetar drottningar í dag og fékk umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar eftir stórsigur í bresku þingkosningunum í gær. Úrslit bresku þingkosninganna í gær komu nokkuð á óvart þar sem kannanir höfðu bent til að mjótt yrði á munum milli Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins. Íhaldsflokkurinn vann hins vegar stórsigur með 331 þingmann og hreinan meirihluta og tap bæði fyrrverandi samstarfsflokks, Frjálslyndra demókrata, og Verkamannaflokksins var stórt. Þrátt fyrir stórsigur Skorska þjóðarflokksins sem fékk 56 af 59 þingmönnum Skotlands, dugar það ekki til að flokkurinn geti veitt Verkamannaflokknum skjól til stjórnarmyndunar. David Cameron hélt sigurreifur á fund Elísabetar II drottningar í dag og fékk umboð hennar til myndunnar nýrrar ríkisstjórnar. Hann heitir því að auka sjálfdæmi íbúa Skotlands, Wales og Norður Írlands eins og allir flokkar höfðu lofað. „Ég er nýkominn af fundi hennar hátignar og mun í framhaldinu mynda nýja meirihlutastjórn Íhaldsflokksins. Og já, við munum standa við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild okkar að Evrópusambandinu. Á sama tíma munum við gæta þess að halda einingu meðal bresku þjóðarinnar,“ sagði Cameron sigurglaður á tröppum Downinstrætis 10 í dag. Ed Milliband sem telst til vinstri í Verkamannaflokknum vann leiðtogakjörið árið 2010 gegn bróður sínum David sem var meira á Blair-línunni. En það var greinilegt að Bretum hugnaðist ekki stefna hans. „Fyrr í dag hringdi ég til David Cameron til að óska honum til hamingju. Ég tek fulla ábyrgð á úrslitunum og tapi okkar í kosningunum. Nú er kominn tími til að einhver annar taki við leiðtogahlutverkinu í flokknum,“ sagði Milliband á fundi með flokksmönnum. Nick Clegg leiðtogi Frjálslyndra demókrata og fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra sagðist alltaf hafa búist við að kosningarnar yrðu flokknum erfiðar eftir veru hans í ríkisstjórn með Íhaldsflokknum. En flokkurinn tapaði stórt, fór úr 56 þingmönnum í átta. „Og ég verð auðvitað að axla ábyrgðina á því og lýsi því þess vegna yfir að ég hef sagt af mér sem leiðtogi flokksins. Leiðtogakjör mun nú fara fram samkvæmt reglum flokksins þar um,“ sagði Nick Clegg eftir ósigurinn í dag.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Sjá meira