Fjórir starfsmenn UNICEF létust Anna Guðjónsdóttir skrifar 22. apríl 2015 16:43 Sigríður segir svona árásir hafa því miður átt sér stað reglulega í sögu UNICEF. Vísir/Epa
Sigríður Víðis og Stefán Ingi stafa bæði á vegum UNICEF. Að minnsta kosti fjórir starfsmenn UNICEF létust og fjórir slösuðust alvarlega þegar sprengja sprakk nálægt bíl þeirra síðastliðin mánudag. Dæmi eru um að íslenskir starfmenn UNICEF hafi starfað á svipuðum slóðum. Fólkið var að ferðast frá skrifstofu sinni í borginni Garowe í Sómalíu. „Árásin í Sómalíu er ekki aðeins árás á UNICEF heldur einnig á börn í Sómalíu og um allan heim sem njóta góðs af þeirri baráttu sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, stendur fyrir,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, kynningarstjóri og fjölmiðlafulltrúi UNICEF á Íslandi. Samkvæmt heimildum AP hefur al-Shabab, öfgahópur múslima sem tengdir hafa verið við Al Qaeda, lýst árásinni á hendur sér. Samtökin gerðu tvær árásir í síðustu viku í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu. Samtökin stóðu einnig á bak við árásina á háskóla í borginni Garissa í norðurhluta Kenía, þar sem fjórir meðlimir al-Shabab myrtu nærri 150 manns.Íslendingar á svipuðum slóðum. „Svona árásir hafa því miður átt sér stað reglulega í sögu UNICEF. Starfsfólki hefur líka verið rænt og sem dæmi hafa sjálfboðaliðar sem unnið hafa í samstarfi við UNICEF að því að bólusetja börn gegn mænusótt verið skotmörk,“ segir Sigríður. Sigríður segir að árásin í Sómalíu muni ekki breyta afstöðu UNICEF. „Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fæðast öll börn með ófrávíkjanleg réttindi. Hins vegar fá ekki öll börn notið þeirra og þessu viljum við breyta.“ „Hugur okkar er núna hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið í Sómalíu og þeirra sem liggja sárir. Samstarfsfólk okkar helgaði líf sitt baráttunni fyrir betri heim í þágu barna og UNICEF heldur baráttu sinni í Sómalíu áfram í minningu þeirra,“ segir Sigríður. Stefán Ingi Stefánsson, fyrrum framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi, deildi á Facebook síðu sinni að í haust hefði hann tekið samskonar rútu í vinnu sína hjá UNICEF á svipuðum slóðum og fólkið sem lést. Hann segir að baráttan haldi áfram en nú með þyngslum fyrir hjarta. Enginn Íslendingur er á vettvangi erlendis á vegum UNICEF núna, en fjórir vinna fyrir UNICEF alþjóðlega.Óendanlega sorglegt. Í haust tók ég daglega samskonar rútu á svipuðum slóðum til að komast í vinnuna eins og þau fjögur...Posted by Stefán Ingi Stefánsson on Monday, April 20, 2015
Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira