Stúdentar búa frítt á dvalarheimili aldraðra Atli Ísleifsson skrifar 14. apríl 2015 10:14 Sex stúdentar búa frítt á heimilinu gegn því að þeir verji þrjátíu klukkustundum í mánuði með hinum eldri heimilismönnum. Mynd/Humanitas
Rekstraraðilar dvalarheimilis aldraðra í hollenska bænum Deventer bjóða stúdentum að búa frítt á heimilinu gegn því að þeir umgangist aðra heimilismenn í nokkrar klukkustundir á dag. „Það er mjög mikill kærleikur á milli þeirra,“ segir í forsvarsmaður verkefnisins í samtali við PBS. Dvalarheimilið er í hollenska bænum Deventer, um tveggja klukkustunda akstur norður af Amsterdam. Sex stúdentar búa frítt á heimilinu gegn því að þeir verji þrjátíu klukkustundum í mánuði með hinum eldri heimilismönnum. Humanitas-stofnunin stendur á bakvið verkefnið. „Stúdentarnir koma því sem er að gerast í heiminum inn til þeirra gömlu. Það er mikill kærleikur á milli þeirra,“ segir Gea Sijpkes, forsvarsmaður Humanitas. Jurriën Mantink stundar nám í hönnun og hefur búið á heimilinu í tvö ár. „Þetta snýst um að vera góður nágranni. Þau gömlu eru mjög lífsglöð og sem námsmaður er hægt að læra ýmislegt af þeim,“ segir Mantink í samtali við ABC. Námsmennirnir aðstoða heimilismenn með hina ýmsu hluti. Þannig hafa þeir til að mynda kennt þeim á tölvu og aðstoðað við matargerð. Að sögn þeirra sem þátt taka í verkefninu er það mikilvægasta þó að umgangast fólkið og sitja og ræða saman. Sijpkes segir hugmyndina upphaflega hafa verið þá að námsmennirnir fengju að búa ókeypis gegn því að þeir gæfu tíma sinn þannig að heimilismenn væru ekki einmana. „Ég vil að þetta sé hlýjasta og vingjarnlegasta heimilið þar sem allir vilja búa.“
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Sjá meira