Tefla í afskekktasta þorpi Grænlands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. apríl 2015 21:42 Drengur í Ittoqqortormiit ánægður við taflborðið. Mynd/Hrókurinn
Skákhátíð Hróksins í Ittoqqortoormiit, afskekktasta þorpi Grænlands, hófst á skírdag með fjöltefli Hrafns Jökulssonar við börn og ungmenni í bænum. Í þorpinu búa liðlega 400 manns en það er á 70. breiddargráðu á austurströnd landsins. Hrókurinn hefur heimsótt Ittoqqortormiit um hverja páska í áratug, og er skákkunnátta hvergi jafn almenn á Grænlandi. Hátíðin í Ittoqqortoormiit stendur alla páskana. Á föstudag verður haldið stórmót um meistaratign bæjarins og fá öll börnin þá páskaegg og fleiri vinninga. Á laugardag verður Norlandair-mótið haldið og þar verða vinningar frá prjónahópi Rauða krossins og íslenskum fyrirtækjum, auk þess sem öll börn fá glaðning frá Nóa Síríus. Á mánudag verður svo haldinn ,,Dagur vináttu Íslands og Grænlands". Samhliða skákhátíðinni er haldinn myndasamkeppni Hróksins og Pennans, þar sem börnin í bænum eru beðin um að draga upp myndir úr sínu daglega lífi. Hróksmenn mættu til bæjarins með myndir sem 5 ára stúlkur í Leikskólanum Öskju teiknuðu fyrir börnin í Ittoqqortoormiit og hafa þær vakið mikla athygli í bænum.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira