Sigmar og Helgi brutu ekki gegn siðareglum með umfjöllun um Vegagerðina Birgir Olgeirsson skrifar 7. apríl 2015 17:17 Sigmar Guðmundsson er ritstjóri Kastljóssins. Það er mat siðanefndar að hann og Helgi Seljan hefðu ekki brotið gegn siðareglum blaðamannafélags Íslands með umfjöllun um Vegagerðina í Kastljósi.
Sigmar Guðmundsson og Helgi Seljan brutu ekki gegn siðareglum blaðamannafélags Íslands þegar þeir nafngreindu mann í umfjöllun Kastljóss um Vegagerðina og meint hagsmunatengsl við innkaup og brot á lögum um opinber kaup. Kæra vegna málsins barst siðanefnd 13. febrúar síðastliðinn með bréfi og var málið tekið fyrir þann 18. mars síðastliðinn. Í umfjölluninni var fjallað um málefni Vegagerðarinnar, meint hagsmunatengsl við innkaup hjá stofnuninni og meint brot á lögum og siðareglum Vegagerðarinnar. Viðtal var við Hrein Haraldsson vegamálastjóra og sjálfstæð innslög fréttamanns voru sýnd. Í inngangi og viðtali við vegamálastjóra var fjallað um viðskipti þjónustudeildar Vegagerðarinnar við fyrirtækin Samrás ehf. og Fjarorku ehf. vegna tæknivinnu og vörukaupa.Bræður nafngreindir Fram kom að bæði félögin væru í eigu Guðlaugs Jónassonar sem er bróðir Nicolai Jónassonar deildarstjóra í þjónustudeild hjá Vegagerðinni. Báðir voru þeir nafngreindir í þættinum en það var Nicolai sem kærði málið til siðanefndar. Fram kom að greiðslur til þessara félaga hjá Vegagerðinni hefðu numið fjögur hundruð milljónum króna frá árinu 2005 og að ekkert verka félaganna hefði verið boðið út né vörukaup þeim tengd. Þá var fjallað um að kærandi hefði á árinu 2008 haldið kynningu á ráðstefnu hjá Vegagerðinni þar sem hann mælti með ákveðinni tegund efnarafala til notkunar fyrir Vegagerðina og að Vegagerðin hefði í kjölfarið keypt slíkan búnað af fyrirtæki bróður kæranda. Fram kom það álit fréttamannsins, Helga Seljan, að ekki yrði betur séð en landslög og siðareglur Vegagerðarinnar hefðu verið brotnar. Kærandi telur að kærðu hafi með umfjöllun sinni brotið gegn siðareglum og er í kæru vísað til þess að fréttaþátturinn hafi í heild sinin brotið gegn æru hans og hann hafi verið nafngreindur án þess að bera hönd fyrir höfuð sér.Kröfðust þess að kærunni yrði hafnað Bæði Helgi Seljan og Sigmar Guðmundsson kröfðust þess að kærunni yrði hafnað og bentu á að gögn og upplýsingar sem aflað var við vinnslu þáttarins, ýmist með upplýsingabeiðni til Vegagerðarinnar eða eftir öðrum leiðum, hafi sýnt að kærandi hafi fyrir hönd stofnunarinnar átt ítrekaða aðkomu að samstarfi, samráði, mati á og loks meðmælum með vörum og þjónustu fyrirtækja bróður síns. Þá mótmæltu þeir einnig að hafa vegið að æru kæranda og að dylgjað hafi verið með grófum hætti um aðild hans að brotum á innkaupareglum Vegagerðarinnar og lögum. Þá mótmæltu þeir einnig að nafngreining kæranda hafi verið óviðeigandi. Það var mat siðanefndar að umfjöllun þeirra um meðferð Vegagerðarinnar á almannafé og meint brot á lögum og reglum hafi átt fullt erindi til almennings enda mikilvægt hlutverk fjölmiðla að veita stofnunum ríkisins aðhald. Starfsmenn hins opinbera verða einnig að vera undir það búnir að verk þeirra séu opinberlega gagnrýnd, að mati siðanefndarinnar. Var það því mat siðanefndarinnar að ekki séu efni til að líta svo á að kærðu hafi brotið gegn siðareglum blaðamannafélags Íslands með þessari umfjöllun.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira