Innlent

Fékk reynslulausn en braut aftur af sér sex vikum síðar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Dómurinn komst því að þeirri niðurstöðu að maðurinn hafi rofið gróflega skilyrði reynslulausnar sinnar og var hann því dæmdur til að afplána eftirstöðvar þeirra dóma sem hann sat inni fyrir, alls 220 daga.
Dómurinn komst því að þeirri niðurstöðu að maðurinn hafi rofið gróflega skilyrði reynslulausnar sinnar og var hann því dæmdur til að afplána eftirstöðvar þeirra dóma sem hann sat inni fyrir, alls 220 daga. Vísir/Heiða
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að maður sem fékk reynslulausn úr fangelsi þann 12. febrúar síðastliðinn skuli afplána eftirstöðvar refsingar sinnar.

Úrskurðinum var áfrýjað til Hæstaréttar en vegna formgalla á kæru varnaraðila var málinu vísað frá og stendur úrskurður héraðsdóms því óraskaður.

Í honum kemur fram að manninum hafi verið veitt reynslulausn gegn því skilyrði að hann myndi ekki brjóta af sér á reynslutímanum sem var tvö ár. Maðurinn sat inni vegna þriggja dóma sem hann hlaut á árunum 2011, 2012 og 2014.

 

Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að maðurinn hafi játað innbrot í bílasölu þann 27. mars síðastliðinn. Þá voru sex vikur liðnar frá því hann losnaði úr fangelsi. Tók maðurinn fimm bíllykla og stal svo ásamt öðrum manni tveimur bílum. Þá er hann grunaður um aðild að öðrum þjófnaði auk þess sem hann er grunaður um fíkniefnaakstur og vopnalagabrot.

 

Dómurinn komst því að þeirri niðurstöðu að maðurinn hafi rofið gróflega skilyrði reynslulausnar sinnar og var hann því dæmdur til að afplána eftirstöðvar þeirra dóma sem hann sat inni fyrir, alls 220 daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×