Tíu mánaða fangelsi fyrir að hóta lögreglumönnum lífláti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. mars 2015 15:58 Frá Frakkastíg. Vísir/Pjetur
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líflátshótanir í garð lögreglumanna í kjölfar handtöku í nóvember 2013. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust. Maðurinn var handtekinn þann 16. nóvember 2013 og færður í lögreglubíl við Frakkastíg í Reykjavík. Hótaði hann við það tilefni einum lögreglumanni líkamsmeiðingum með því að segja „ég skal brjóta á þér andlitið“ auk þess að hafa hótað sama lögreglumanni og tveimur til viðbótar lífláti í bílnum á leiðinni á lögreglustöðina. Maðurinn hefur þrettán sinnum verið dæmdur frá árinu 1998 en meðal þeirra brota sem hafa áhrif á dóminn er fimm ára skilorðsbundin refsing fyrir tilraun til mótspyrnu gegn lögreglu í Salzburg í Austurríki árið 2010. Þá var hann dæmdur í Hæstarétti í fimmtán mánaða fangelsi árið 2011 fyrir brot gegn ýmsum ákvæðum umferðarlaga og sömuleiðis í átján mánaða fangelsi fyrir brot á almennum hegningarlögum og vopnalögum árið 2008. Ástæða þess að maðurinn fær tíu mánaða dóm skýrist meðal annars af 225 dögum sem maðurinn átti eftir að sitja af sér en honum var veitt reynslulausn af fyrri dómi. Ákærði lagði fram vottorð fyrir dómi þess efnis að hann væri að reyna að ná stjórn á áfengissjúkdómi sínum. Var tekið tillit til þess og skýlausrar játningar.Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira