„Það ber enginn höfuðið hátt hérna í röðinni“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 25. mars 2015 17:07 Löng röð myndaðist fyrir utan húsnæði Fjölskylduhjálpar í Breiðholti í dag. vísir/valli
Helena Sjöfn Steindórsdóttir segir það ekki samfélagslega viðurkennt að vera öryrki á Íslandi. Hún segist hafa tapað sjálfsvirðingunni eftir að hafa greinst með mikla gigt vegna vinnuálags og veit fátt verra en að þurfa að bíða í röð eftir mataraðstoð. Yfir fjögur hundruð fjölskyldur þáðu mataraðstoð frá Fjölskylduhjálp Íslands í dag og var Helena ein þeirra. Hún er móðir þriggja en býr ein í Hafnarfirði.Dregur úr manni alla orku „Það ber enginn höfuðið hátt hérna í röðinni. Ég fer ekkert á morgun, mun bara sofa. Þetta dregur úr manni alla orku, en svona er þetta bara. Ef ég kem ekki þá á ég ekki neitt,“ segir hún. Helena segir matinn duga skammt og þá þurfi að leita ýmissa annarra leiða til að útvega sér fæði. „Við megum koma hingað einn miðvikudag í mánuði og maturinn dugar ekki út mánuðinn. Það er ekki auðvelt, langt því frá, en núna þarf maður bara að reyna að redda sér í gegnum páskana.“ Amalía Kolbrún Úlfarsdóttir beið með Helenu í röðinni. Amalía er sjötug, öryrki, og segist lítið hafa á milli handanna. Hún ól upp fjögur börn og vann alla sína ævi og segir fátt eins særandi og að sjá hvernig komið er fram við þá sem minna mega sín í samfélaginu. „Ég vann 150 prósent vinnu nánast alla mína ævi en svo þegar maður er orðinn að gamalmenni og öryrkji þá er manni refsað fyrir það. Það er eins og það vilji enginn hafa okkur hérna í þjóðfélaginu,“ sagði Amalía.Sjá einnig: Hátt í fjögur hundruð fjölskyldur þáðu mataraðstoðÚtrunninn matur Flestir í röðinni voru á einu máli um að Fjölskylduhjálp stæði vel að hlutunum, en sögðu matinn þó ekki nægan. Þá var það jafnframt gagnrýnt að oft á tíðum væri útrunninn matur á boðstólnum. Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar, segir að útrunninn matur sé í boði fyrir þá sem vilja. Séu það mjólkur- eða kjötvörur hafi þær verið frystar og oftast notaðar í neyð. Þurrmatur; kex og annað, sé nánast alltaf í boði.Röðin verst Þá sögðu jafnframt flestir að röðin væri einna erfiðust í þessu ferli sem fylgi því að óska eftir aðstoð. Aðstoðinni fylgi mikil skömm og því væri þess óskandi að hún myndi ganga eins hratt fyrir sig og möguleiki væri á. Röðin verður þó oftast afar löng og gengur hægt því hver og einn þarf að sýna fram á að hann eigi rétt á matarúthlutun. Gefa þarf upp kennitölu sem færð er inn í tölvukerfi, sem svo segir til um fjölskylduaðstæður og tekjur hvers og eins. Út frá því er ákveðið hversu mikinn mat hver og einn fær. „Það er bara agalegt að þurfa að bíða svona, maður vill bara ljúka þessu sem fyrst,“ sagði sextugur karlmaður í röðinni.
Tengdar fréttir Hátt í 400 fjölskyldur þáðu mataraðstoð Löng biðröð var fyrir utan húsnæði Fjölskylduhjálpar í dag. 25. mars 2015 16:04 Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira
Hátt í 400 fjölskyldur þáðu mataraðstoð Löng biðröð var fyrir utan húsnæði Fjölskylduhjálpar í dag. 25. mars 2015 16:04