Innlent

Geir afhenti Obama trúnaðarbréfið í Hvíta húsinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, og Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, og Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Mynd/Facebook-síða Utanríkisráðuneytisins
Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, afhenti trúnaðarbréf sitt í Hvíta húsinu í gær á fundi með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna.

Geir var skipaður sendiherra í júlí á seinasta ári af Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra, og lá það fyrir í september að hann færi til Bandaríkjanna. Hann fór til Washington í upphafi ársins.

Geir er fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.


Tengdar fréttir

Geir spenntur fyrir Washington

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands og formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hlakka til að taka við stöðu sendiherra í Washington en stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa samþykkt skipun hans í embættið.

Geir Haarde sendiherra í Washington

Bandarísk stjórnvöld hafa samþykkt Geir sem sendiherra en hann tekur við af Guðmundi Árna Stefánssyni sem hefur verið sendiherra í Washington frá árinu 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×