Innlent

Útvarpa lestri á öllum Kóraninum

Linda Blöndal skrifar
Vísir/Getty
Finnska ríkisútvarpið hefur ákveðið að útvarpa lestri á öllum Kóraninum. Um verður að ræða 60 hálftímalanga þætti með umræðum tveggja sérfræðinga um textann sem lesinn er í hvert sinn. Sérfræðingarnir eru annars vegar leiðtogi úr samfélagi múslima í Finnlandi, Imam Anas Hajjar og hins vegar Jaakko Hameen-Anttilaprófessor og þýðandi Kóransin á finnsku.



Markmiðið er að upplýsa almenning betur um innihald Kóransins og menningu múslima í landinu þar sem fimm milljónir búa og af þeim sextíu þúsund múslimar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×