Lífið

Átta þúsund kaloríur á dag: Hvernig á að borða það sem Bradley Cooper borðaði?

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Bradley Cooper virðist vera búinn að losa sig við eitthvað af þessum 20 kílóum sem hann bætti á sig fyrir American Sniper.
Bradley Cooper virðist vera búinn að losa sig við eitthvað af þessum 20 kílóum sem hann bætti á sig fyrir American Sniper.
Bradley Cooper þurfti að þyngjast um tæp 20 kíló fyrir myndina American Sniper, þar sem hann leikur sjóhermanninn Chris Kyle. Hann þurfti að innbyrða átta þúsund hitaeiningar á dag til þess að bæta þyngdinni á sig.

Tímaritið Elle fékk næringafræðing til þess að setja sama máltíðir sem samanlagt uppfylla þetta göfuga markmið; að veita einhverjum átta þúsund hitaeiningar á einum degi. Í ljós kom, við samsetningu matseðilsins, ef svo má kalla, að það er afar erfitt að ná að borða svona mikið á einum degi.

Tillaga næringafræðingsins Dana James:

Morgunmatur:

Ein skál af Granola-morgunkorni með mjólk - 660 hitaeiningar

„Smoothie“ úr kókosmjólk, kókósolíu, avókadu, chia-fræ og með einni skeið af próteini - 1294 hitaeiningar.

Samtals 1954 hitaeiningar.

Morgunsnarl:

140 grömm af valhnetum - 925 hitaeiningar

Hádegismatur:

Ein og hálf skál af Laksa súpu. 2214 hitaeiningar

Laksa súpa er gífurlega hitaeiningarík súpa, en uppskriftin er frá Malasíu. Hún inniheldur kókosrjóma í miklu magni, en einnig rækjur, kjúkling, núðlur og grænmeti.

Síðdegissnarl:

Skál af grískri jógúrt, með jarðaberjum, hnetum og hungangi - 761 hitaeining.

Kvöldverður:

Hamborgari með cheddar osti, sósum og grænmeti - 600 hitaeiningar.

Franskar kartöflur, miðstærð af skammti - 497 hitaeiningar.

Þrír fjórðu hlutar af bolla af grænum baunum - 150 hitaeingar

Tvö glös af rauðvíni - 250 hitaeiningar

Samtals - 1728 hitaeingar

Eftirréttur:

Stór „brownie“ kaka með ís. - 488 hitaeiningar.

Samtals yfir daginn: 8070 hitaeingar.

Þetta þurfti Bradley Cooper að innbyrða í nokkra mánuði til þess að þyngja sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.