Vilja minnast 200 ára afmælis Jóns Árnasonar Atli Ísleifsson skrifar 11. september 2015 12:34 Jón Árnason fæddist á Hofi á Skagaströnd 17. ágúst 1819. Mynd/Wikipedia
Fjórir þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela mennta- og menningarmálaráðherra að láta minnast Jóns Árnasonar, landsbókavarðar og þjóðsagnasafnara, með „tilhlýðilegum hætti“ þegar tvær aldir eru liðnar frá fæðingu hans árið 2019. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Samkvæmt tillögunni skal Jóns meðal annars vera minnst með því að Landsbókasafn Íslands og Háskóli Íslands standi fyrir veglegri ráðstefnu um lífsstarf hans. Þá verði sett upp lágmynd af Jóni í húsakynnum Landsbókasafnsins og einnig norður á Skaga, sem næst fæðingarstað hans. „Slíkt látlaust minnismerki hæfði vel minningu Jóns.“ Kostnaður við gerð og uppsetningu lágmynda og ráðstefnu og gestakomur er samtals áætlaður fjórar milljónir. Jón Árnason fæddist á Hofi á Skagaströnd 17. ágúst 1819. Hann lést 4. september 1888 og er hann jarðaður í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Í greinargerð með tillögunni segir að Jón og Magnús Grímsson hafi hafið söfnun íslenskra þjóðsagna um miðja 19. öld. „Þjóðernisvakning 19. aldar hafði meðal annars í för með sér áhuga á þeim frásögnum sem gengu mann fram af manni og enginn vissi höfund að og var farið að kalla þjóðsögur.“ Árangur af söfnun Jóns og Magnúsar leit dagsins ljós 1852 í bókinni Íslenzk æfintýri, en fyrir forgöngu Jóns Sigurðssonar forseta og velvild Konrads Maurer kom út í Leipzig árin 1862 og 1864 tveggja binda útgáfa þjóðsagnasafns sem kennt er við Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira