Lögreglumenn skotnir skömmu eftir afsögn borgarstjóra Heimir Már Pétursson skrifar 12. mars 2015 22:14
Tveir lögregluþjónar særðust þegar skotið var á þá fyrir utan höfuðstöðvar lögreglunnar í borginni Ferguson í Bandaríkjunum í nótt. Mótmælendur höfðu safanast saman við lögreglustöðina aðeins nokkrum klukkustundum áður en lögreglustjóri borgarinnar sagði af sér. Mikill órói hefur verið í borginni Ferguson í Missouri í Bandaríkjunum frá því hvítur lögregluþjónn skaut hinn 18 ára gamla blökkumann Michael Brown til bana í borginni hinn 9. ágúst í fyrra. Lögregluþjóninn Darren Wilson var sýknaður af öllum ákærum fyrir dómi og áfrýunardómstól Missouri ríkis. Mjög algengt er að lögreglumenn skjóti á svart fólk, sérstaklega unga karlmenn, í Bandaríkjunum en atburðirnir í Ferguson kveiktu reiði- og mótmælaöldu víðs vegar um landið. Eftir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti mjög harðorða skýrslu fyrir viku þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að rasismi sé grasserandi í lögregluliði Ferguson borgar, hafa nokkrir embættismenn sagt af sér og lögreglustjórinn Thomas Jackson sagði síðan af sér embætti í gærkvöldi. „Borgin hefur verið og mun áfram vinna í þeim vandamálum sem nefnd eru í skýrslunni. Það er markmið borgarstjórnar að halda áfram að hafa gagnsæi í baráttu okkar fyrir því að borgin verði aftur atorkumikil borg fjölbreytileika,“ sagði Jockson borgarstjóri. En skömmu áður en lögreglustjórinn sagði af sér hafði hópur mótmælenda komið saman við lögreglustöðina. Mótmælin voru friðsamleg framan af en eftir að lögregla beindi þeim mótmælendum sem eftir voru um miðnætti yfir götuna við lögreglustöðina voru tveir lögregluþjónar skotnir, annar í öxlina og hinn í andlitið. Báðir lifðu þeir skotárisana af en ekki liggur fyrir hver skaut þá. Þeir eru þó báðir sagðir alvarlega særðir.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Fleiri fréttir Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Sjá meira