Innlent

Handtekin fyrir líkamsárás á hesthúsasvæði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maður sem grunaður er um akstur undir áhrifum og að hafa ekið próflaus var færður í fangageymslu í dag.
Maður sem grunaður er um akstur undir áhrifum og að hafa ekið próflaus var færður í fangageymslu í dag. Vísir/Anton Brink
Kona var handtekin um hádegið í dag á hesthúsasvæði í Hafnarfirði. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að konan hafi verið ölvuð og að hún sé grunuð um að hafa ráðist á aðra konu sem var einnig á hesthúsasvæðinu.

Þá hafði lögreglan einnig afskipti af manni sem svaf undir stýri bifreiðar á bílstæði í Hraunbæ. Að sögn vitna hafði maðurinn ekið bílnum inn á stæðið og svo lagst fram á stýrið. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna en einnig kom í ljós að hann var próflaus. Hann var færður í fangageymslu að lokinni sýnatöku.

Rétt eftir hádegi var svo tilkynnt um innbrot í íbúð við Eggertsgötu. Farið var inn í íbúðina af svölunum og fartölvu stolið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×