Námsmatsstofnun braut lög með spurningalista fyrir grunnskólabörn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2015 11:54 Frá samræmdum prófum. Vísir/GVA
Persónuvernd kemst að þeirri niðurstöðu að Námsmatsstofnun hafi brotið lög með því að leggja spurningalista fyrir börn í 4., 7. og 10. bekk samhliða samræmdum prófum. Er stofnuninni gert að eyða þeim upplýsingum sem safnað var með spurningalistanum. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar. Í október í fyrra barst Persónuvernd kvörtun frá foreldri vegna spurningalista sem lagður var fyrir nemendur í bekk dóttur hennar. Á listanum hafi komið fram að kynna eigi foreldrum listann og þeir þurfi að veita samþykki sitt. Einnig veki upp spurningar að listann eigi að merkja með nafni og kennitölu barnsins.Vildu meðal annars fá upplýsingar um einelti Í svari Námsmatsstofnunar við fyrirspurn Persónuverndar segir að listinn hafi átt að gegna þríþættu hlutverki. Fylgjast með mati nemenda á samræmdu prófunum, fylgjast með algengi eineltis og líðan nemenda en þriðja hlutverkið er óljósara; þar hafi átt að skjóta inn spurningum um ólík atriði hafi verið pláss til þess. Varðandi auðkenningu með nafni og kennitölu taldi stofnunin nauðsynlegt að geta tengt svör nemenda við árangur á prófinu. Það eigi einkum við um spurningar er lúti að prófinu sjálfu, efni þess og hvernig nemendur undirbjuggu sig. Sömuleiðis hafi kennitalan átt að gefa upplýsingar um einelti yfir tíma og tengja námsárangur við hugmyndir nemenda um framtíðarstarf og búsetu. Námsmatsstofnun viðurkenndi að bréf til foreldra hefðu ekki borist fyrir mistök. Auk þess hafi þeim ekki verið pakkað inn á réttan hátt. Vísað er til skipulagsvanda þar sem hlutverk starfsmanna hafi riðlast vegna fyrirhugaðs samruna Námsmatsstofnunar við Menntamálastofnun.Þurfa að eyða svörunum Foreldrið sem kvartaði kaus ekki að gera athugasemdir við svör stofnunarinnar. Í ljós hafði komið að spurningalistinn sem dóttir hennar svaraði hafði ekki verið sendur til Námsmatsstofnunar eftir að kvartað var og ljóst að samþykkis hefði ekki verið aflað. Þá staðfesti starfsmaður stofnunarinnar að stofnunin hefði engin samþykki frá foreldrum undir höndum. Skólum hefði ekki verið skylt að afhenda slíkar samþykkisyfirlýsingar. Ætlaðist stofnunin til að hver og einn skóli sæi um að afla upplýsts samþykkis. Komst Persónuvernd að þeirri niðurstöðu að þar sem persónuupplýsingar voru skráðar án tilskilinnar heimildar þyrfti stofnunin að eyða svörum við spurningalistanum fyrir 1. maí næstkomandi.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira