Vaxtaverkir, formlegheit og ný forysta Snærós Sindradóttir skrifar 7. september 2015 07:00 Óttarr Proppé var sjálfkjörinn formaður Bjartrar framtíðar. Áður en hann hellti sér út í stjórnmálin hafði hann gert garðinn frægan sem rokkari og bóksali. Hann segist í raun ekki hafa persónulegan metnað fyrir formannsembættinu, hann finni þó til ábyrgðar. Fréttablaðið/Snærós
Það voru um sjötíu manns samankomnir á aðalfundi Bjartrar Framtíðar á laugardag, sem haldinn var í íburðarmiklu húsnæði Officera klúbbsins á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fundurinn var þó nokkuð í fjölmiðlum síðustu vikur enda fyrirséð að á honum yrði breytt um forystu í einu og öllu. Fyrir utan formannskjör voru hefðbundin aðalfundarstörf á dagskránni. Einhver hafð orð á því að formlegheitin væru ívið meiri en tíðkast hefði í Besta flokknum. Þetta liti allt miklu meira út eins og fundur hjá alvöru stjórnmálaflokki. Orðið vaxtaverkir kom fyrir hjá öllum sem minntust á fylgisvandræðin. Það er sérstök orðnotkun í síminnkandi flokki. Fráfarandi formaður flokksins, Guðmundur Steingrímsson, ávarpaði fundinn í upphafi. Hann ræddi ekki um fylgishrun flokksins, né það að hann væri að láta af embætti. Ræða hans snerist í einu og öllu um að kveða í kútinn gagnrýnisraddir sem segja að flokkurinn hafi enga stefnu. Og vitnaði hann í félaga sinn Óttarr Proppé. „Við erum íkornarnir sem dansa á trjátoppunum. Við hvíslum þegar aðrir öskra.“ Þegar Óttarr Proppé þingmaður tilkynnti um framboð sitt varð ekkert úr framboði annarra sem voru orðaðir við embættið. „Ég hef ekki þannig séð metnað fyrir því að gegna embætti og vera formaður en ég fann til ábyrgðar og þess að ég hefði eitthvað til málanna að leggja. Ég átti ekki von á öðru en að fleiri myndu bjóða sig fram.“ Hann segir ekki málefnaágreining innan flokksins. Þó sé viðbúið að einhver áherslubreyting verði með nýjum formanni. Þeir Guðmundur séu ólíkir menn en sammála.Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræðiÓttarr með víðtækari skírskotun„Ég hugsa að miðað við þá stöðu sem upp var komin þá hafi þetta verið klókasta niðurstaða flokksins," segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við háskólann á Bifröst, um formannsskipti Bjartrar framtíðar. Aðspurður hvort hann telji að ný forysta muni hífa fylgi flokksins upp segir hann: „Við vitum það auðvitað ekki enn þá en ég hugsa að Óttarr Proppé hafi töluvert víðtækari skírskotun en flestir aðrir stjórnmálamenn í landinu. Það sem maður á aðeins eftir að átta sig á er hversu nálægt Pírötum hans fylgi liggur. Hvort að hann fari hugsanlega að höggva í þær raðir núna. Hvort honum tækist að laða til sín eitthvað af því fylgi sem núna streymir til Píratanna í krafti þess að vera ekki hefðbundinn stjórnmálamaður og í krafti þess að koma úr pönkhreyfingunni." Heilbrigðismál eru heita kartaflanHeilbrigðisstefna Bjartrar framtíðar var samþykkt á fundinum. Einkavæðing heilbrigðisþjónustu var hitamál fundarins. Í nýrri heilbrigðisstefnu flokksins kemur fram að Björt framtíð styðji fjölbreytni í rekstri heilbrigðisþjónustu. Sigrún Gunnarsdóttir, sem kynnti stefnuna, tók fram að hún myndi ekki finna sig í flokki sem vildi takmarka einkaframtak. Önnur sjónarmið heyrðust líka. Ein kona lýsti því yfir að sér þætti erfitt að tala fyrir einkavæðingu. Önnur að einkavædd heilbrigðisþjónusta myndi rífa í sundur kerfi sem annars gæti unnið vel saman. Þá lýsti karlmaður því yfir að flokkurinn ætti ekki að velta því fyrir sér hvort einhver væri að græða á þjónustunni. Ef einhver gæti veitt þjónustuna fyrir minni pening en hið opinbera þá ætti að nýta sér það. Kona, með reynslu af heilbrigðiskerfinu, sagði að hættan við einkavæðingu væri að þá yrði það tekið út sem væri auðvelt og aðgengilegt en opinbera kerfið skilið eftir með erfiða og þunga ummönnun. Það gerði vinnuaðstæður heilbrigðisstarfsfólks mun verri.Brynhildur S. Björnsdóttir nýr stjórnarformaður Bjartrar framtíðarleftStjórnarformaður og formaður jafnvæg"Ég lít á þetta sem átaksverkefni til eins árs til að snúa við skipinu," segir Brynhildur S. Björnsdóttir nýkjörinn stjórnarformaður Bjartrar framtíðar. Brynhildur bar sigur úr býtum í kosningunni með 61 prósent atkvæða. Hún hafði áður boðið sig fram til sama embættis en þá tapað fyrir Margréti Marteinsdóttur. "Við þurfum að hafa andlegan og pólitískan leiðtoga og það er mín trú að Óttarr Proppé sé hann. En svo þarf skipulagsfríkið og þar kem ég sterk inn." Brynhildur er fyrsti varaþingmaður í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hún segist ekki hugsa sér að sitja í meira en eitt ár. Snúa þurfi fylgistapinu við. "Það verður að gera það. Kjósendur segja það og þeir hafa rétt fyrir sér."
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira