Ísland og Bandaríkin undirrita FACTA samkomulag Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. maí 2015 14:13 Bjarni Benediktsson og Robert Barber takast í hendur að undirritun lokinni. mynd/vefur fjármálaráðuneytisins
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Rober C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, undirrituðu í dag, fyrir hönd ríkja sinna, samning um regluleg upplýsingaskipti vegna fjármálastofnana í samræmi við FACTA lögin bandarísku frá 2010. FATCA er stytting á enska heitinu Foreign Accounts Tax Compliance Act og varðar bandarísk lög um upplýsingaskyldu erlendra fjármálastofnana vegna reikninga í eigu bandarískra aðila. Samkvæmt lögunum ber öllum erlendum fjármálastofnunum að senda árlega upplýsingar um tekjur og eignir bandarískra skattgreiðenda beint til bandarískra skattyfirvalda. Fallist þau ekki á að senda slíkar upplýsingar eiga þau á hættu að lagður verði 30% afdráttarskattur á tilteknar greiðslur til þeirra sem upprunnar eru í Bandaríkjunum. Í samningnum felst að upplýsingaskiptin fari fram á milli skattyfirvalda í Bandaríkjunum og á Íslandi og að bæði ríkin senda nauðsynlegar upplýsingar um skattgreiðendur, bæði einstaklinga og fyrirtæki. „Það er ánægjulegt að samningurinn sé í höfn, en tilkoma hans léttir byrði af fjármálastofnunum með því að samskipti vegna þessara mála fari í gegnum skattyfirvöld. Það er stefna íslenskra stjórnvalda að auka regluleg upplýsingaskipti í skattamálum á alþjóðavísu og þessi samningur er skref í þá átt,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra við undirritun samningsins. „Bandaríkin fagna skuldbindingu Íslands um að efla tvíhliða samstarf okkar til að bæta alþjóðleg skattaskil. Undirritunin í dag markar mikilvægt skref fram á við í sameiginlegu átaki í baráttunni gegn skattaskjólum sem gagnast báðum löndum,” segir Robert Barber um áfangann. Hægt er að lesa samninginn í heild sinni með því að smella hér.
Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Fleiri fréttir Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Sjá meira