Myrti fimm vikna barnabarn sitt Samúel Karl Ólason skrifar 30. apríl 2015 23:00 Mark Jones og Amelía.
Mark Jones var á dögunum dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að myrða fimm vikna gamla dótturdóttur sína. Saksóknarar sögðu hann hafa framið ódæðið þar sem honum væri illa við föður barnsins, kærasta dóttur sinnar. Jones hafði sannfært dóttur sína um að hann væri veikur ári áður svo hann fengi að taka þátt í lífi hennar. Hann hafði þóst falla í yfirlið fyrir framan hana og hringt í hana og þóst vera læknir. Árið 2012 fór dóttir hans í bíó og bauðst hann til þess að passa Amelíu barnabarn sitt. Samkvæmt frétt á vef Sky lést Amelía tveimur sólarhringum síðar. Sérfræðingar sögðu að henni hefði verið veitt þung höfuðhögg og að hún hefði verið hrist. Rannsókn leiddi í ljós að þegar Amelía hætti að anda hringdi Jones í dóttur sína, áður en hann hringdi í neyðarlínuna. Sjálfur hélt hann því fram að hún hefði fengið þessa áverka eftir að hann missti stúlkuna í gólfið. Dóttir Jones var sjálf handtekin vegna málsins og hin börn hennar tekin af henni í eitt og hálft ár samkvæmt BBC. Hún segir þetta hafa eyðilagt líf sitt og fjölskyldu sinnar. Hún sagði að eitt barna hennar hafi spurt hana: „Ef afi sleppur úr fangelsi þurfum við þá að flytja? Ég er hræddur um hann muni myrða mig næst.“ Dómarinn sagði að Jones sýndi enga iðrun fyrir ódæðið og að ef honum yrði nokkurn tíman sleppt úr fangelsi yrði hann mjög gamall maður.
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Erlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Sjá meira