Hrósar Kim Davis fyrir hugrekki og hvetur áfram Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. október 2015 07:00 Frans páfi, kominn aftur til Rómar, segir borgarstjórann þar bara þykjast vera kaþólskan. Nordicphotos/EPA
Páfagarður Frans páfi er greinilega mikið ólíkindatól. Nú berast fréttir af því að í Bandaríkjaheimsókn sinni hafi hann meðal annars átt fund með Kim Davis, fulltrúanum á sýsluskrifstofu í smábæ í Kentucky, sem af trúarlegum ástæðum neitaði að gefa saman samkynhneigð pör. Hún sat fimm daga í fangelsi fyrir vikið, en hún segir að páfi hafi hrósað sér fyrir hugrekkið og sagt henni að sýna styrk áfram. Þá fer hann ófögrum orðum um Ignazio Marino, borgarstjórann í Róm, sem hefur vakið athygli fyrir stuðning sinn við hjónabönd samkynhneigðra og líknardráp. „Hann þykist vera kaþólskur, það kom yfir hann allt í einu. Það gerist ekki þannig,“ sagði Frans páfi við blaðamenn. Þá sagðist hann alls ekki hafa boðið borgarstjóranum að taka þátt í samkomu í Philadelphiu, sem borgarstjórinn segist hafa notað meðal annars til þess að safna fé til uppbyggingar í Rómarborg. Þetta segir páfi eftir að hafa ítrekað boðað kærleika og miskunnsemi gagnvart öllum sem standast ekki ströngustu kröfur trúarinnar, og meðal annars talað óhræddur yfir hausamótunum á bandarískum ráðamönnum í heimsókn sinni þangað, hvatt þá til að taka opnum örmum á móti flóttafólki og innflytjendum, hætta vopnasölu og afnema dauðarefsingu. Sýslufulltrúinn Kim Davis segir, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér, að hún hafi aldrei átt von á því að hitta páfa. Hann hafi hins vegar verið vinsamlegur, sýnt sér einlæga umhyggju og verið mjög persónulegur.
Mest lesið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Innlent Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Innlent Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Erlent „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Innlent Fyrsta konan sem skipuð er yfirlögregluþjónn Innlent Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Innlent Fleiri fréttir Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Sjá meira