UNICEF hefur fræðsluátak fyrir úkraínsk börn um jarðsprengjur Atli Ísleifsson skrifar 31. mars 2015 15:20 Börn eru í sérstakri hættu vegna sprengivopna, sem oft eru skær að lit, forvitnileg í útliti og nógu létt til að börnin geti handleikið þau. Vísir/AFP
UNICEF hefur hrundið af stað fræðsluátak í austurhluta Úkraínu þar sem fleiri en 500 þúsund börnum og fjölskyldum þeirra eru veittar lífsnauðsynlegar upplýsingar um þá hættu sem stafar af jarðsprengjum og ósprungnum sprengjum. Að minnsta kosti 42 börn hafa látist og 109 börn særst alvarlega vegna jarðsprengja og annarra ósprunginna sprengjuvopna í héruðunum Donetsk og Luhansk í austurhluta Úkraínu frá því að átök brutust út fyrir um ári. Í tilkynningu frá UNICEF segir að tölulegar upplýsingar frá stjórnvöldum endurspegli þó ekki endilega réttan fjölda þeirra barna sem hafi látið lífið eða særst vegna slíkra vopna. „Opinbera talan yfir fjölda þessara barna væri að öllum líkindum mun hærri ef þau svæði sem uppreisnarmenn ráða yfir væru tekin með í reikninginn,“ segir Marie-Pierre Poirier, talskona UNICEF fyrir Mið- og Austur-Evrópu. „Átökin í Úkraínu hafa nú staðið yfir í rúmt ár. Íbúar margra samfélaga í austurhluta landsins hafa upplifað harkalegt ofbeldi, þar á meðal stórskotaliðsárásir sem hafa skilið eftir sig mikla eyðileggingu. Í héruðunum Donetsk og Luhansk hafa 33.717 ósprungnar sprengjur fundist og verið gerðar óvirkar. Fjölskyldur, sem lent hafa á vergangi vegna átakanna og hafa nú snúið aftur heim, eru í mikilli hættu í þeim þorpum og bæjum þar sem leit að ósprungnum sprengjum hefur enn ekki verið lokið.Skærar að lit og forvitnilegar í útlitiBörn eru í sérstakri hættu vegna sprengivopna, sem oft eru skær að lit, forvitnileg í útliti og nógu létt til að börnin geti handleikið þau. Börn halda þess vegna oft að um leikföng sé að ræða eða verðmæta hluti. UNICEF hefur hrundið af stað fræðsluátaka í austurhluta Úkraínu þar sem fleiri en 500.000 börnum og fjölskyldum þeirra eru veittar lífsnauðsynlegar upplýsingar um þá hættu sem stafar af jarðsprengjum og ósprungnum sprengjum. Útvegað er prentað fræðsluefni, efni á myndbandsformi og í gegnum stafræna miðla en jafnframt hafa 100 kennarar og skólasálfræðingar fengið fræðslu um hvernig brýna megi fyrir börnum að forðast jarðsprengjur. „Þar til nú hefur lítil vitneskja verið um þær hættur sem jarðsprengjur og ósprungnar sprengjur geta valdið, á svæðum þar sem átök hafa geisað en eru nú í rénun,“ segir Poirier. „Þess vegna vinnum við ásamt samstarfsaðilum okkar að því að auka vitund fjölskyldna um hættuleg sprengjuvopn sem enn eru til staðar í samfélögunum.“ Fleiri en 5 milljónir fólks í Úkraínu eiga um sárt að binda vegna átakanna, þar af eru 1,7 milljónir barna. 1,1 milljón manns er á vergangi innan landsins vegna ofbeldisins,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Fleiri fréttir Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sjá meira