Lífið

Daniel Radcliffe er ömurlegur í móttökunni

Birgir Olgeirsson skrifar
Daniel Radcliffe í móttöku Nylon-tímaritsins.
Daniel Radcliffe í móttöku Nylon-tímaritsins. Vísir/YouTube
Breski leikarinn Daniel Radcliffe á ekki framtíðinni fyrir sér í móttökubransanum. Þessi 25 ára gamli leikari var látinn vinna í móttöku Nylon-tímaritsins í New York og var það hluti af falinni myndavél.

Á meðan gríninu stóð kom Daniel litlu í verk ef marka má ummæli ónafngreinds starfsmanns Nylon sem skrifaði umsögn um myndbandið á vefinn YouTube. „Ég fékk engin símtöl á þeim klukkutíma sem Daniel var þarna, sem er skrýtið. Og pakki sem átti að berast til mín komst aldrei til skila.“

Þá var Daniel einnig sleginn út af laginu þegar hann var spurður um frímerki. „Ég er ekki viss um að ég geti aðstoðað þig. Þú gætir þurft að koma aftur þegar einhver reyndari snýr aftur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.