Mikið um dýrðir í Danaveldi í dag Heimir Már Pétursson skrifar 16. apríl 2015 10:55 Margrét Þórhildur veifaði til þegna sinna sem sungu fyrir hana í Fredensborgarhöll í morgun. vísir/afp
Margrét II drottning af Danmörku er 75 ára í dag og verður mikið um hátíðarhöld hjá Dönum í tengslum við afmælið. Hátíðarkvöldverður var í konungshöllinni í gærkvöldi þar sem íslensku forsetahjónin voru meðal konung- og eðalborinna. Danska drottningin heitir fullu nafni Margrethe Alexandrine Þórhildur Ingrid. En það var Ingrid móðir hennar, sem var af sænskum aðalsættum, sem vildi endilega að stúlkan héti einnig íslensku nafni. En þegar Margrét Þórhildur fæddist þennan dag árið 1940 hafði Danmörk verið hersetin af Þjóðverjum í viku. Margrét varð drottning eftir að faðir hennar, Friðrik IX lést hin 14. janúar 1972, en þá var prinsessan rétt að verða 32 ára. Hún tók upp drottningarnafnið Margrét II sem var engin tilviljun, því síðasta konan á undan henni til að verða drottning var Margrét I, sem var drottning Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar frá 1387 til 1412. Þegar Margrét Þórhildur fæddist gerðu dönsk lög hins vegar ekki ráð fyrir að konur gætu erft krúnuna. Því var aftur á móti breytt þegar hún var þrettán ára, árið 1953, og ljóst var að foreldrar hennar myndu ekki eignast son. Þótt faðir hennar hafi verið krónprins Íslands um tíma var hún þó aldrei krónprinsessan af Íslandi. Boðið var til mikillar veislu í Amalienborg, aðsetri drottningarinnar í Kaupmannahöfn, í gærkvöldi í tilefni afmælis drottningar. En eiginmaður hennar Hinrik prins var hins vegar fjarri góðu gamni vegna skæðrar flensu. Við háborðið með drottningu sátu konungar Noregs og Svíþjóðar ásamt börnum drottningar, mökum þeirra, systrum drottningarinnar og mökum þeirra og öðrum nákomnum og eðalbornum, ásamt ókonungbornum forsetum Íslands og Finnlands og mökum þeirra. Friðrik krónprins flutti ræðu móður sinni til heiðurs og það gerði Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra einnig. Drottningin þakkaði svo fyrir sig með ræðu. Mikil afmælisdagskrá er í Danmörku í dag og sendir rás eitt danska sjónvarpsins, DR 1, beint út frá hátíðarhöldunum í allan dag. Fylgjast má með hátíðarhöldunum á vef danska ríkisútvarpsins.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Fleiri fréttir Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Sjá meira