Óhugnanlegt morð á níu ára stúlku skekur Frakkland Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2015 11:19 Lík stúlkunnar fannst í skóglendi nokkru norður af Calais. Vísir/AFP
Mikil sorg ríkir í franska bænum Calais eftir að níu ára stúlku var rænt í bænum, nauðgað og síðar kyrkt. Lögregla hefur handtekið 38 ára mann vegna málsins, en honum var nýlega sleppt úr fangelsi.Í frétt BBC kemur fram að stúlkunni hafi verið rænt þar sem hún lék sér úti með vinkonu sinni, nærri heimili sínu á miðvikudaginn. Einungis nokkrum klukkustundum síðar fannst lík hennar í nálægu skóglendi og var maður handtekinn skömmu síðar. Hann hefur nokkrum sinnum verið dæmdur til fangelsisvistar, bæði í Frakklandi og Póllandi. Flaggað er í hálfa stöng við ráðhús Calaisborgar og hefur borgarstjórinn boðað til sérstakrar minningarstundar í kvöld. Móðir stúlkunnar segir í samtali við franska fjölmiðla að hún hafi skilið dóttur sína eftir í fimm mínútur til að skipta á tveimur yngri börnum sínum. Þegar hún sneri aftur sá hún hvernig maður þröngvaði stúlkunni upp í rauðan bíl á pólskum númerum og ókí burtu. Lögregla fann bílinn nokkru síðar í skógi norður af bænum. Maðurinn var þá handtekinn en hann hafði lykla að bílnum á sér. Hann hafði nýverið afplánað sex ára fangelsisdóm.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Sjá meira