Stoltenberg segir alvarlegt að Rússar hafi breytt landamærum Evrópu Heimir Már Pétursson skrifar 16. apríl 2015 18:45
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagins ræddi þær nýju ógnir sem bandalagið telur aðildarríki þess standa frammi fyrir við forsætis- og utanríkisráðherra í opinberri heimsókn sinni til landsins í dag. Hann segir NATO hafa aukið viðbúnað sinn í Eystrasaltsríkjunum vegna vaxandi umsvifa Rússa við landamæri þeirra. Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO kemur hingað til lands í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Hann heimsótti Landhelgisgæsluna og Keflavíkurflugvöll í dag, ásamt því að eiga fundi með forsætisráðherra og Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra. Þetta er fyrsta heimsókn Stoltenbergs til Íslands frá því hann tók við embætti framkvæmdastjóra NATO. En hann þekkir hins vegar vel til málefna Íslands frá því hann var þingmaður og ráðherra í Noregi. „Við áttum mjög góðar viðræður um samstarf Íslands og NATO ásamt þróun mála innan bandalagsins og þau verkefni sem blasa við því. Til að mynda ræddum við ástandið í austur Evrópu, ógnina af ISIS, þjóðaröryggi í Afganistan og mikilvægi netöryggis,“ sagði forsætisráðherra að loknum fundi með Stoltenberg. Leiðtogar Eystrasalsríkjanna, yngstu NATO ríkjanna, hafa lýst miklum áhyggjum vegna aukinna umsvifa Rússa við landamæri ríkja þeirra. „Við sjáum enga bráða ógn standa að nokkru aðildarríki NATO. Ekki heldur Eystrasaltsríkjunum. En við tökum hins vegar eftir því að Rússar hafa aukið hernaðarumsvif sín og nærveru sína við landamæri NATO ríkja og beitt hervaldi gegn Úkraínu,“ segir Stoltenberg. NATO hafi brugðist við með aukinni nærveru herdeilda og skipa á Eysrasalti, enda væri árás á eitt NATO ríki árás á þau öll.Samband NATO og Rússlands hefur ekki verið eins stirt síðan í kalda stríðinu. Getum við sagt að nú eigum við í volgu stríði við þá eða hefur nýtt kalt stríð hafist? „Ég vil ekki kalla það kalt stríð eins og við áttum í allt fram að falli Berlínarmúrsins. En við erum í mjög erfiðri stöðu sem varað með um langa hríð. Það ríkir óöryggi og óstöðugleiki og það er alvarlegt að Rússar hafa sýnt vilja til að nota hernaðarmátt sinn til að breyta landamærum í Evrópu. Hafa innlimað hluta af öðru landi - og það er í fyrsta skipti sem það gerist frá því í seinni heimsstyrjöldinni,“ segir Jens Stoltenberg.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Sjá meira