Ætla að nota köfnunarefnisgas við aftökur í Oklahoma Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. apríl 2015 22:03 Mary Fallin, ríkisstjóri í Oklahoma, skrifaði undir lög sem heimila notkun efnisins í gær. Vísir/AFP
Oklahomaríki í Bandaríkjunum hefur sett lög sem heimila notkun köfnunarefnisgass til þess að taka fanga af lífi í stað banvænnar sprautu. Aðferðin felur í sér að fangar kafna þegar þeir eru þvingaðir til að anda að sér köfnunarefni í gegnum gasgrímu. Mary Fallin, ríkisstjóri í Oklahoma, skrifaði undir lög sem heimila notkun efnisins í þessum tilgangi í gær. Hún og aðrir stuðningsmenn aftökuaðferðarinnar segja hana sársaukalausa fyrir fanga. Gasið gerir fólk meðvitundarlaust á innan við tíu sekúndum og drepur það á mínútum. Þá hafa stuðningsmenn þessarar aðferðar bent á fjárhagslegan ávinning fyrir ríkið; einungis þurfi einn kút af köfnunarefnisgasi og gasgrímu. Samkvæmt Washington Post er þó ekki hægt að staðfesta hver raunverulegur kostnaður er við aðferðina enn þá. Notkun á köfnunarefnisgasi við aftökur verður varaleið sé ekki hægt að taka fólk af lífi með banvænni sprautu einhverra hluta vegna. Notkun á banvænum sprautum til að framfylgja dauðarefsingum hefur sætt nokkurri gagnrýni og hefur gengið erfiðlega fyrir ríki að kaupa lyfið sem notað er. Þegar hafa nokkur ríki hætt að nota sprauturnar og eru aðeins nokkrir dagar síðan að Tennesseeríki ákvað að aflýsa öllum aftökum. Fá lyfjafyrirtæki og lyfsalar hafa áhuga á að skaffa lyfið og mikil andstaða hefur verið á meðal lækna við notkun lyfja við aftökur. Samtök svæfingalækna í Bandaríkjunum hafa til að mynda ályktað um fyrirhugaðar aftökur en evrópsk lyfjafyrirtæki hafa hótað því að hætta að selja lyf sín til Bandaríkjana, verði þau notuð í þessum tilgangi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Sjá meira