Allt að 84 prósent verðmunur apóteka Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. nóvember 2014 06:45 Lyfjaver á Suðurlandsbraut var oftast ódýrast í verðkönnun ASÍ. Fréttablaðið/Valli
Mikill verðmunur er á öðrum vörum en lyfjum í apótekum segir verðlagseftirlit ASÍ. Oftast var verðið lægst hjá Lyfjaveri Suðurlandsbraut, í átta tilvikum af 47 og í sjö tilvikum hjá Austurbæjarapóteki í Ögurhvarfi. Í átta tilvikum var verðið hæst í Siglufjarðarapóteki og í sjö tilvikum í Gamla apótekinu Melhaga og Lyfsalanum Álfheimum. Mestur verðmunur í könnuninni var 84 prósent.Verðkönnun ASÍ af asi.is:Mikill verðmunur á öðrum vörum apótekanna en lyfjum Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á ýmsum vörum sem seldar eru í apótekum, mánudaginn 3. nóvember. Skoðaðar voru m.a. vörur eins og plástrar, krem, varasalvi, fæðubótarefni og lúsasjampó. Farið var í 21 apótek en Árbæjarapótek og Apótek Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Lyfjaveri Suðurlandsbraut eða í 8 tilvikum af 47 og hjá Austurbæjar Apóteki Ögurhvarfi í 7 tilvikum. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Siglufjarðar Apóteki í 8 tilvikum af 47 og hjá Gamla apótekinu Melhaga og Lyfsalanum Álfheimum í 7 tilvikum. Oftast var á milli 25-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði. Minnsti verðmunur í könnuninni var 10% en sá mesti 84%. Aðeins Lyfjaver Suðurlandsbraut átti til allar vörurnar sem skoðaðar voru en fæstar vörurnar voru fáanlegar hjá Lyfsalanum Álfheimum. Mestur verðmunur í könnuninni var á Panaten kremi (50 ml.) sem var dýrast á 709 kr. hjá Lyfsalanum Álfheimum en ódýrast á 385 kr. hjá Austurbæjar Apóteki sem er 324 kr. verðmunur eða 84%. Minnstur verðmunur var á Ros bleikum naglalakksleysi (100 ml.) sem var dýrastur á 619 kr. hjá Austurbæjar Apóteki en ódýrast á 563 kr. hjá Rima Apóteki Langarima sem er 10% verðmunur. Af öðrum vörum sem skoðaðar voru í könnuninni og voru fáanlegar hjá öllum söluaðilum má nefna að Vivag sápan - female (200 ml.) var dýrust á 1.490 kr. hjá Siglufjarðar Apóteki en ódýrust á 1.005 kr. hjá Apóteki Hafnarfjarðar Tjarnarvöllum, sem er 485 kr. verðmunur eða 48%. A+D kremið original ointment (113 gr.) var dýrast á 2.012 kr. hjá Borgar Apóteki Borgartúni en ódýrast á 1.584 kr. hjá Apóteki Garðabæjar sem er 428 kr. verðmunur eða 27%.Sjá nánar í töflu. Könnunin var gerð í eftirtöldum apótekum: Apóteki Hafnarfjarðar, Tjarnarvöllum 11; Apótekarinn Hafnarstræti 95, Akureyri; Apótekinu Hólagarði, Lóuhólum 2-6; Garðs Apóteki, Sogavegi 108; Lyf og heilsa Hveragerði; Borgar Apóteki, Borgartúni; Lyfju Ísafirði; Lyfjavali Álftamýri, Álftamýri 1-5; Lyfjaveri, Suðurlandsbraut 22; Reykjavíkur Apóteki, Seljavegi 2; Rima Apóteki, Langarima 21; Skipholts Apóteki, Skipholti 50B; Urðarapóteki, Vínlandsleið 16; Akureyrarapóteki, Kaupangi við Mýrarveg; Apóteki Vesturlands, Smiðjuvöllum 32, Akranesi; Siglufjarðar Apóteki, Norðurgötu 4B; Apóteki Garðabæjar, Litlatúni 3; Apóteki Suðurnesja, Reykjanesbæ; Gamla apótekinu Melhaga 20-22; Lyfsalanum, Álfheimum 74; Austurbæjar Apóteki, Ögurhvarfi 3. Árbæjarapótek og Apótek Ólafsvíkur sem fyrr segir neituðu þátttöku í könnuninni. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira