Atvinnuleysi kvenna vegna niðurskurðar Snærós Sindradóttir skrifar 23. júlí 2014 07:00 Atvinnuátaksverkefni á borð við Allir vinna snerust mörg hver um að fjölga störfum í byggingariðnaði. Iðnaðarmenn misstu vinnuna fljótlega eftir hrun en atvinnumál kvenna haldast ekki í hendur við uppgang í einkageiranum nú. Fréttablaðið/Vilhelm
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra hefur óskað eftir því að Vinnumálastofnun fari í saumana á nýjum upplýsingum sem Fréttablaðið birti á mánudag sem sýna að langtímaatvinnuleysi er mest í hópi kvenna yfir fimmtugu. Jafnframt segir hún að vinna standi yfir við gerð frumvarps sem meðal annars eigi að banna mismunun á vinnumarkaði á grundvelli aldurs. „Reynsla Evrópuþjóða sem hafa innleitt þessar reglur hefur sýnt að flest málin sem koma upp þar sem reynir á þessa löggjöf eru vegna mismununar á grundvelli aldurs. Það koma líka upp mál vegna mismununar á grundvelli annarra þátta en langalgengust er mismunun á grundvelli aldurs.“Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherraFréttablaðið/VilhelmHún segir að nú þegar atvinnuleysi fari minnkandi verði að skoða hvers vegna ákveðnir hópar sitji eftir og nái sér ekki jafn vel á strik og aðrir. „Karlar á Íslandi eru líklegri til að starfa í einkageiranum en konur eru líklegri til að starfa í opinbera geiranum. Þar er mikið aðhald og þar verður áfram mikið aðhald.“ Undir þetta tekur Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun. Hann segir að uppgangur í einkageiranum geti ef til vill skýrt það hvers vegna konur hafi setið eftir á atvinnuleysisskrá. Aðspurður segir hann ástæðu atvinnuleysis kvenna þó ekki vera að þau atvinnuátaksverkefni sem ráðist var í eftir hrun hafi verið of karllæg og ekki höfðað til kvenna. „Við vitum þó að karlar tóku frekar þátt í þeim en konur tóku frekar þátt í námstengdum úrræðum,“ segir Karl. Ríflega fimm hundruð konur yfir fimmtugu eru skilgreindar langtímaatvinnulausar. 42 prósent þeirra kvenna sem eru atvinnulausar hafa verið það í meira en eitt ár, eða 333 talsins. Eygló segir að stjórnvöld verði að skoða hvað hægt sé að gera fyrir þennan hóp. „Ég mun hafa samband við Landssamband eldri borgara og óska formlega eftir samstarfi hvað þetta varðar. Ég hef nú þegar tekið málið upp líka við forstjóra Vinnumálastofnunar. Bæði þarf að skoða hópinn betur og huga að því hvað við gætum hugsanlega gert og gæti skýrt þennan mun.“
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira