Ólga vegna launa á hjúkrunarheimilum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 6. mars 2014 00:00 Staðan á hjúkrunarheimilum, sem rekin eru á daggjöldum, er misalvarleg.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ólga er nú meðal hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum sem eru með lægri laun en hjúkrunarfræðingar í starfi hjá ríkinu. Við blasir að gripið verði til einhvers konar aðgerða, að sögn Ragnheiðar Gunnarsdóttur, varaformanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún segir launaleiðréttinguna sem hjúkrunarfræðingar í starfi hjá ríkinu fengu í fyrra í gegnum stofnanasamninga ekki hafa skilað sér til hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. „Eina leiðin til að leiðrétta það misræmi sem er á kjörum hjúkrunarfræðinga er í gegnum kjarasamninga sem nú eru lausir. En hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimilum eru ekki sáttir við að fá bara 2,8 prósenta hækkun eins og aðrir þar sem hún kemur ofan á lægri grunn en hjá hinum.“ Að sögn Ragnheiðar eru hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimilum farnir að segja upp og hverfa til starfa annars staðar þar sem þeir fá hærri laun. „Það er víða undirmönnun. Fólk hættir og annað kemur ekki í staðinn. Þetta kemur niður á gæðum hjúkrunarinnar. Færri verða til að leiðbeina minna menntuðu starfsfólki og tryggja örugga og faglega hjúkrun. Lífsgæði þeirra sem búa á hjúkrunarheimilunum munu versna.“ Gísli Páll Pálsson, forstjóri í Mörk, hjúkrunarheimili, og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, segir að í síðustu viku hafi verið leitað eftir meiri fjármunum frá ríkinu í tengslum við nýja kjarasamninga. „Við vorum svo grunlaus að við héldum að hækkanirnar frá ríkinu í fyrra kæmu sjálfkrafa á okkar stofnanir. Það var óskynsamlegt hjá báðum ríkisstjórnunum að gera þetta svona. Svokallað jafnlaunaátak endaði í ójafnlaunaátaki.“ Að sögn Gísla er staðan misalvarleg á hjúkrunarheimilunum sem rekin eru á daggjöldum. „Við höfum bent á það í mörg ár að daggjöld þurfi að hækka um 10 prósent og heilbrigðisráðherra viðurkenndi nú í desember að daggjaldagrunnurinn væri veikur.“
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira