Hluthafasamkomulag í HS-veitum stenst ekki raforkulög Heimir Már Pétursson skrifar 12. apríl 2014 12:00
Orkustofnun telur að ákvæði í samningi við Úrsus um kaup félagsins á um þriðjungs hlut í HS-veitum samræmist ekki ákvæðum raforkulaga, en í kaupsamningi er Úrsusi veitt neitunarvald um vissar ákvarðanir um framtíð fyrirtækisins. Í Reykjavík vikublaði er fréttaskýring um kaup Úrsusar á hlut Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjanesbæjar upp á samtals 34,4 prósent, en með kaupunum eru einkaaðilar í fyrsta skipti orðnir eigendur veitufyrirtækis sem dreifir m.a. vatni til almennings. Eigendur Úrsusar eru Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir, hópur lífeyrissjóða og aðrir fjárfestar. Hluturinn var keyptur á um þrjá milljarða króna. Í lögum segir að opinberir aðilar eigi að hafa óskoruð yfirráð yfir veitufyrirtækjum. En í sérstöku hluthafasamkomulagi milli Reykjanesbæjar sem enn á ráðandi hlut í fyrirtækinu og Úrsusar er kveðið á um að Úrsus hafi neitunarvald varðandi ákvarðanir um framtíðar fjárfestingar fyrirtækisins. Í umsögn sem Samkeppniseftirlitið bað Orskustofnun um að leggja fram segir að með hluthafasamkomulaginu sé því þannig komið fyrir að nýr hluthafi geti með neitunarvaldi sínu komið í veg fyrir að fyrirtækið ræki skyldur sínar lögum samkvæmt. Orkustofnun telji þetta fyrirkomulag því ekki samræmast ákvæðum raforkulaga með hliðsjón af þeirri samfélagsskyldu sem fyrirtækið hafi. Í fréttaskýringu Reykjavíkur vikublaðs kemur fram að í andsvari Úrsusar sé því lýst að aðilar séu ósammála mati Orkustofnunar. Sjónarmið Orkustofnunar feli í sér mistúlkun á ákvæðum hluthafasamkomulagsins og það sé jafnframt ómálefnalegt. Álitið feli í sér að Úrsus hyggist beita neitunarvaldi sínu, þ.e. að standa í veg fyrir því að HS veitur sinni skyldum sínum. Orkustofnun svarar þessu og segir að með hluthafasamkomulaginu sé verið að auka vægi hlutar sem seldur hafi verið og þótt það þurfi ekki að fela í sér að ákvæðinu verði beitt, geti það gert það.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira