Frábær skemmtun framundan 31. janúar 2014 17:00 Hjörvar Hafliðason, knattspyrnumaður í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport og visir.is munu sýna beint frá öllum íþróttagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Rússlandi. Auk þeirra verður samantektarþáttur sýndur öll kvöld kl. 22 þar sem farið verður yfir úrslit dagsins og málin rædd. Að sögn Hjörvars Hafliðasonar, dagskrárstjóra Stöðvar 2 Sports, munu Rússar leggja allt undir til að gera útsendingar frá Vetrarólympíuleikunum sem glæsilegastar. „Þetta eiga eftir að vera rosalegar útsendingar með frábærri myndvinnslu. Áður en landsmenn vita verða þeir farnir að horfa á Vetrarólympíuleikana á hverjum degi enda eiga þeir eftir að verða stórskemmtilegir.“ Fyrirtækið 365 verður með einkarétt á streymingu efnis gegnum síma og vef. Nær allt efni frá leikunum sem Stöð 2 Sport sýnir verður í beinni útsendingu á visir.is og þar með í snjallsímum. Auk þess geta þeir sem hafa Oz-appið fylgst með beinum útsendingum á Stöð 2 Sport, bæði í iPhone- og Android-snjallsímum. „Setningarhátíðin verður sýnd í beinni útsendingu og eftir hana tekur við hver stórviðburðurinn eftir annan. Íshokkíkeppnin byrjar með látum en nokkrar af bestu þjóðum heims mætast strax í riðlakeppninni. Þá verða allir bestu íshokkímenn heims á leikunum, til dæmis Sidney Crosby, Alexander Ovechkin og Henrik Lundquist.“ Íslendingar eiga einn keppanda í skíðagöngu og fjóra í alpagreinum og segir Hjörvar að vel verði fylgst með þeim. „Sævar Birgisson keppir í sprettgöngu sem er virkilega skemmtilegt sjónvarpsefni. Þar mun mikill snillingur aðstoða okkur við lýsinguna sem er Jakob Einar Jakobsson, okkar helsti sérfræðingur í skíðagöngu og skíðaskotfimi. Fjórar ungir og efnilegir skíðamenn taka þátt í alpagreinum en sú grein skipar alltaf stóran sess á Vetrarólympíuleikunum.“ Hjörvar nefnir einnig bobsleðakeppnina en þar snýr lið Jamaíku aftur til leiks eftir nokkurra ára fjarveru. Landslið þeirra vakti heimsathygli þegar það keppti fyrst á Vetrarólympíuleikunum í Kanada árið 1988 eins og greint var frá síðar í kvikmyndinni vinsælu Cool Runnings. „Áhugafólk um þokkafullar hreyfingar ætti síðan ekki að láta skautadansinn framhjá sér fara og einnig má nefna skautahlaupið sem er í raun spretthlaup á ís.“ Setningarathöfn Vetrarólympíuleikanna hefst 7. febrúar en undankeppni í nokkrum greinum hefst degi fyrr. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á visir.is og stod2.is.
Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Fleiri fréttir Óábyrgt að láta leikmenn spila á hættulegum velli Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Berglind næststigahæst á EM Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Dagskráin í dag: Snókerinn á sviðið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Lygilegur viðsnúningur Argentínu Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands