Verk Erró í Álftahólum tekur á sig mynd Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2014 10:30 Vesturgafl Álftahóla 4-6. Vísir/GVA
Vesturgafl íbúðarblokkarinnar við Álftahóla 4-6 verður öllu litríkari innan tíðar en þar er unnið hörðum höndum að uppsetningu veggmyndar eftir Erró. Listamaðurinn gefur Reykjavíkurborg höfundarverk sitt fyrir verkið sem er annað tveggja sem á að „fegra Efra-Breiðholt og auka stolt íbúanna af nærumhverfi sínu,“ eins og segir í lýsingu á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Hitt verk Errós verður á bogadregnum vegg við íþróttahúsið við Austurberg. Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, fylgdist með vinnu við uppsetningu verksins við Álftahóla í vikunni og tók meðfylgjandi myndir.Um fjögurra metra bil er á milli húsanna tveggja.Vísir/GVASkiptar skoðanir eru meðal íbúa í Breiðholti um þann kostnað sem fer í verkin tvö. Þótt Erró gefi höfundarverk sitt er kostnaður vegna framleiðslu og uppsetningu áætlaður 38,8 milljónir króna. „Þar fyrir utan er þetta óþarfa gjörningur, fyrir þennan pening mætti gera gagn fyrir Breiðholtið. Bæta aðstöðu nemenda í skólunum, uppbyggingu íþróttahúss, salt í grautinn og svo mætti lengi telja. Mér finnst þetta eiginlega bara hræsnisframkvæmd,“ segir einn íbúa Breiðholts í þræði á síðunni Íbúasamtökin Betra Breiðholt á Facebook. Töluverðar umræður hafa skapast um framkvæmdina á síðunni og ber bæði á óánægjuröddum hjá þeim sem telja að peningunum sé varið í ranga hluti og eins hjá þeim sem gagnrýna hve illa sýnilegt verkið verði. Vesturgaflinn á Álftahólum 4-6 stendur nokkuð þétt upp við aðra nokkuð lægri byggingu. Því verður aðeins efri hluti verksins sýnilegur sem nokkrir íbúar í Breiðholti eru ósáttir við. „Var búinn að benda á strax við fyrstu kynningu , að myndin myndi alls ekki öll verða sjáanleg vegna nálægðar við næstu blokk,“ skrifar annar íbúi í Breiðholti í færslu á fyrrnefndri Facebook-síðu.Málarar að störfum.Vísir/GVATelja margir að þar hafi skipuleggjendum í borginni orðið á í messunni en hið rétta er að markmiðið frá upphafi var að verkið væri aðeins að hluta sýnilegt úr fjarlægð. Efri hluti myndarinnar sést úr fjarlægð og „þannig myndi listaverkið kalla fólk langt að og bjóða því inn í hverfið, þar sem það fengi að njóta heildarmyndarinnar,“ eins og segir á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Fígúrurnar úr myndinni á gafli Álftahólablokkarinnar verða svo stækkaðar á bogadregna vegginn við Austurberg.
Tengdar fréttir Erró í Efra-Breiðholt Til stendur að skreyta gafl tveggja bygginga í efra Breiðholti með verkum myndlistarmannsins Erró. 3. júní 2014 16:23 Fegra Breiðholtið með list Myndlistarmaðurinn Erró skreytir veggi í Breiðholtinu. 5. júlí 2014 11:00 Erró í Breiðholtið Tvær risavaxnar veggmyndir eftir listamanninn Erró verða settar upp í efra Breiðholti á næstunni. Borgarstjóri segir að verkin komi til með að auka lífsgæði í hverfinu. 4. júlí 2014 17:35 Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Aðstoðar Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Sjá meira
Erró í Efra-Breiðholt Til stendur að skreyta gafl tveggja bygginga í efra Breiðholti með verkum myndlistarmannsins Erró. 3. júní 2014 16:23
Erró í Breiðholtið Tvær risavaxnar veggmyndir eftir listamanninn Erró verða settar upp í efra Breiðholti á næstunni. Borgarstjóri segir að verkin komi til með að auka lífsgæði í hverfinu. 4. júlí 2014 17:35