Máli Óðins Freys enn frestað vegna fjarveru Stefán Árni Pálsson skrifar 3. apríl 2014 15:47 Óðni er gert að mæta aftur í Héraðsdóm þann 2. maí. visir/stefán
Fyrirtaka í máli hins opinbera gegn Óðni Frey Valgeirssyni átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir, með því að hafa, sunnudaginn 11. mars 2012, veist með ofbeldi og hótunum að konu á þrítugsaldri á þáverandi heimili hans. Ákærði mætti ekki fyrir dóm og var því málinu aftur frestað, nú til 2. maí. Þann 10. mars síðastliðin var fyrirhuguð fyrirtaka í málinu en Óðinn mætti þá ekki í dómssal. Þá var málinu frestað til 20. mars. Málinu var því næst aftur frestað til dagsins í dag. Fram kom í réttarsalnum að Óðinn hefði undanfarið verið í meðferð á meðferðarheimilinu Krýsuvík. Lögmaður hans staðfesti í dag að hann hefði úrskrifað sjálfan sig og ekkert hefði spurst til hans síðan. Í ákærunni er Óðni Frey gefið að sök að hafa meinað konunni útgöngu úr læstu herbergi í tvær klukkustundir. Óðinn hafi hrint konunni ítrekað, rifið í og dregið hana á hárinu. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa slegið konuna með flötum lófa og sparkaði einu sinni í hægra hné hennar. Óðinn á einnig að hafa hótað konunni lífláti ef hann fengi ekki að hafa kynmök við hana. Þá hafi hann haldið á opnum skærum sem hann ógnaði henni með að því er segir í ákærunni. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan gerir kröfu um að Óðni verði gert að greiða henni miskabætur upp á þrjár milljónir ásamt vöxtum.
Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Innlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð Sjá meira