Ógnaði konu með skærum og krafðist kynmaka Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2014 10:31 Óðni verður gert að mæta fyrir dóm þann 20. mars. vísir/stefán
Þingfesting var í máli hins opinbera gegn Óðni Frey Valgeirssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hann er ákærður fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir, með því að hafa, sunnudaginn 11. mars 2012, veist með ofbeldi og hótunum að konu á þrítugsaldri á þáverandi heimili hans. Ákærði mætti ekki fyrir dóm í morgun og enginn lögmaður á hans vegum viðstaddur dómshaldið. Því var ekki hægt að birta honum ákæruna. Málinu var því frestað til 20. mars en ríkisvaldið mun því næst hafa upp á manninum og færa hann fyrir dóm. Í ákærunni er Óðni Frey gefið að sök að hafa meinað konunni útgöngu úr læstu herbergi í tvær klukkustundir. Óðinn hafi hrint konunni ítrekað, rifið í og dregið hana á hárinu. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa slegið konuna með flötum lófa og sparkaði einu sinni í hægra hné hennar. Óðinn á einnig að hafa hótað konunni lífláti ef hann fengi ekki að hafa kynmök við hana. Þá hafi hann haldið á opnum skærum sem hann ógnaði henni með að því er segir í ákærunni. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan gerir kröfu um að Óðni verði gert að greiða henni miskabætur upp á þrjár milljónir ásamt vöxtum.visir/pjeturHefur áður komið við sögu lögreglu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Óðinn Frey í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi árið 2011 fyrir að hafa hafa ráðist á sextán ára gamla stúlku á göngustíg í Laugardal í október 2010, slegið hana ítrekað með hörðu áhaldi í höfuð og tekið hana hálstaki og þrengt að þar til hún missti meðvitund.Hann var síðan sýknaður af ákærunni í Hæstarétti 29. september árið 2011. Þá komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ágallar á skýrslutökum lögreglu af systur Óðins væru þess eðlis að ekki væri hægt að líta til skýrslnanna við úrlausn málsins. Hún hafði hvorki verið upplýst með fullnægjandi hætti um réttarstöðu sína sem vitnis né um það hverjir myndu fá aðgang að upptökum af skýrslutökunum. Einnig var fundið að því að ekki hefði farið fram rannsókn á erfðaefni á blóðsýnum sem tekin voru á vettvangi árásarinnar, myndir af áverkum stelpunnar hefðu ekki verið í gögnum málsins og að skort hefði greinargóðar lýsingar á hæð og útliti Óðins og árásarþolans.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira